Clark í sérflokki en þarf að byrja snemma eins og Gunnlaugur Árni Sindri Sverrisson skrifar 19. júní 2026 08:33 Wyndham Clark var glaðbeittur á fyrsta degi Opna bandaríska mótsins í gær. Getty/Warren Little Wyndham Clark er langefstur eftir fyrsta keppnisdag en á enn eftir að ljúka fyrsta hringnum, á Opna bandaríska mótinu í golfi. Clark fer snemma af stað í dag líkt og Gunnlaugur Árni Sveinsson og fleiri kylfingar sem ekki náðu að ljúka hringnum áður en myrkrið skall á.
Keppni í gær var frestað um tvær klukkustundir vegna þoku og það hafði þau áhrif að ekki gátu allir kylfingar klárað fyrsta hring í gær. Keppni hefst því að nýju nú í morgunsárið klukkan 10:35 að íslenskum tíma, eða klukkan 6:35 að staðartíma á Shinnecock Hills vellinum í New York-fylki, þar sem kylfingar klára fyrsta hring áður en annar hringur tekur við. Áætlað er að Gunnlaugur Árni, sem nú er meðal neðstu manna á +9 höggum eftir 14 holur, hefji svo annan hring klukkan 12:40, í beinni útsendingu á Sýn Sport. Clark er á sex höggum undir pari eftir 16 holur í gær og er með fjögurra högga forskot á aðra kylfinga á þessum gríðarlega erfiða velli. Talað hefur verið um að gott yrði að leika völlinn á pari en Clark náði að fimm fugla og einn örn, á 5. holu, en fékk skolla á 2. holu. Hann hóf leik á 10. teig og á því núna eftir að spila 8. og 9. brautina. Næstir á eftir Clark, á -2 höggum, eru Sam Stevens, Max McGreevy, Matt Fitzpatrick, Dustin Johnson, Gary Woodland, Jon Rahm og Ryder Cowan en sá síðastnefndi er áhugakylfingur líkt og Gunnlaugur Árni. Þeir Fitzpatrick, Johnson, Woodland og Rahm eiga eftir að ljúka fyrsta hring og á Rahm flestar holur eftir eða fimm. Rory McIlroy, Ludvig Åberg, Max Greyserman, Brian Harman, Ben James, Corey Conners, Bryson DeChambeau, Ben Kohles og Angel Hidalgo eru jafnir í 9. sæti á -1 höggi, og eiga þrír síðastefndu enn eftir að ljúka fyrsta hring. Stöðuna má sjá með því að smella hér.
Golf Opna bandaríska Mest lesið Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Enski boltinn Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Golf Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Fótbolti Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Handbolti Víkingar kaupa Hrannar Snæ frá Noregi Íslenski boltinn Uppgjörið: Þór/KA-Fram 2-0 | Ungi miðvörðurinn hetja norðankvenna Íslenski boltinn Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Fótbolti Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Fótbolti Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Enski boltinn Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Guðrún Brá lék best alla og er komin í efsta sætið Dagbjartur áfram í frábærum gír í titilvörninni „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Íslandsmeistarinn byrjar best allra á Íslandsmótinu í golfi Elsa Maren með sex fugla á síðustu sjö holunum Gæti skákað föður sínum: „Þetta verður spennandi“ Á heimavelli og freista þess að ná montrétti fjölskyldunnar Völlurinn fyrir Íslandsmótið slær í gegn: „Eins og þegar ég var lítil“ Vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð Tíu fyrrum Íslandsmeistarar keppa á Íslandsmótinu í golfi í ár Vann bráðabanann eftir að hafa beðið lengi í klúbbhúsinu Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Gunnlaugur Árni tekur þátt í Einvíginu á Nesinu Gagnrýnd fyrir að hrekkja kylfusveininn Danir og Norðmenn keppa í golfinu í anda Ryder-bikarsins Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Guðmundur Oddsson látinn „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt Sjá meira