Golf

Sjáðu upp­hafs­högg Gunn­laugs Árna á annarri holu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur fyrstur íslenskra karla hafið leik á Opna bandaríska risamótinu í golfi.
Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur fyrstur íslenskra karla hafið leik á Opna bandaríska risamótinu í golfi. Getty/Ryan Sirius Sun

Gunnlaugur Árni Sveinsson fékk skolla á annarri holu og er því á einu höggi yfir pari eftir tvær holur. Hér má sjá fyrsta höggið á holunni.

Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur fyrstur íslenskra karla hafið leik á Opna bandaríska risamótinu í golfi sem að þessu sinni fer fram á hinum sögufræga Shinnecock Hills Golf Club í New York.

Gunnlaugur var ræstur út klukkan 20:20 í kvöld, tveimur tímum seinna en upphafleg dagskrá sagði en ástæðan er tveggja tíma töf vegna þoku á vellinum fyrr í dag.

Hér fyrir neðan má sjá upphafshögg Gunnlaugs á annarri holunni. Það er nóg af glompum í kringum flötina á annarri holu og því miður fór okkar maður í eina slíka.

Gunnlaugur sló í glompu, vinstra megin við braut, eftir fyrsta högg sitt á annarri holu. Kúlan fer af bakkanum hægra megin við glompuna og rennur út í glompuna.

Það er sýnt beint frá mótinu á Sýn Sport en einnig má fylgjast með beinni textalýsingu hér.

Klippa: Upphafshögg Gunnlaugs á 2. holu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×