Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júní 2026 22:47 Lionel Messi fagnar hér einu marka sinna en hann skoraði tvö af þremur mörkum sínum eftir að sumum fannst að það hefði átt að reka hann af velli. Suður-Afríkumaðuinn Themba Zwane fékk aftur á móti rautt spjald og þriggja leikja bann. Getty/Charlotte Wilson/Tom Weller Suður-Afríkumaðuinn Themba Zwane fékk þriggja leikja bann og er líklega búinn að spila sinn síðasta leik á heimsmeistaramótinu.
Zwane fékk bannið fyrir ofbeldisfulla hegðun í opnunarleik HM gegn Mexíkó. Zwane var vísað af velli á 84. mínútu í leiknum sem Mexíkó vann 2-0. Hann slengdi handleggnum í andlit Roberto Alvarado frá Mexíkó þegar hann var að fara fram hjá honum og dómarinn Wilton Sampaio var ekki í vafa eftir að hafa séð atvikið í endursýningu. Zwane virtist lítið skilja í rauða spjaldinu. Brottvísun á HM gefur sjálfkrafa eins leiks bann, en þessum reynda leikmanni Suður-Afríku er refsað harðar af Alþjóðaknattspyrnusambandinu, FIFA. ‘There was not even VAR on Messi!’: SAFA to appeal Themba Zwane’s three-match banhttps://t.co/9DM1D0QI6i— News24 🇿🇦 (@News24) June 18, 2026 Aganefnd FIFA greinir frá því að hún hafi ákveðið þriggja leikja bann fyrir brot á 14. grein, 1. mgr. e-lið í reglum sambandsins. Hún felur í sér að minnsta kosti tveggja leikja bann fyrir alvarlega grófan leik. Suður-Afríkumenn áfrýjuðu rauða spjaldinu og þriggja leikja banninu en Hugo Broos, aðalþjálfari liðsins, veltir því fyrir sér hvers vegna Lionel Messi hafi fengið aðra meðferð en miðjumaður hans. Ein regla er fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane eins og hann orðar það. Messi slapp við hvers kyns refsingu fyrir að stíga aftan á fótlegg Aïssa Mandi í 3-0 sigri Argentínu á Alsír á þriðjudag. Broos harmar það sem hann telur vera tvískinnung í dómgæslunni. "When I saw what happened yesterday with Messi, I don't agree" 🗣️Hugo Broos on Themba Zwane's three-match ban 🇿🇦#FIFAWorldCup2026 | #DStvFIFAWoldCup2026 | #EverythingCanWait pic.twitter.com/UT4T8F4CHB— SuperSport Football ⚽️ (@SSFootball) June 17, 2026 „Ég vil ekki að Messi fái rautt spjald, leikmaður eins og hann á að vera inni á vellinum, við sáum öll hversu dásamlegur leikmaður hann er, en hver er munurinn?“ spurði Broos á blaðamannafundi á miðvikudag. „Rauða spjaldið hjá Zwane er of strangt. Ég horfði aftur á atvikið með Themba og mér finnst þetta ekki hafa verið rautt spjald.“ „Þegar ég ber það saman við það sem gerðist í gær með Messi þá er ég svo sannarlega ekki sammála. Ég held að það hafi ekki einu sinni farið fram VAR-skoðun hjá Messi á meðan þetta atvik var skoðað.“ „Þegar maður horfir á atvikið, þá hindrar leikmaður Mexíkó minn leikmann,“ bætti Broos við. „Hann er ekki að horfa á boltann, hann er bara að halda í Themba.“ „Themba reynir að komast fram hjá honum, leggur handlegginn yfir öxlina á honum og fyrir það fær maður rautt spjald og þriggja leikja bann!?“ „Fyrirgefðu, en þetta er allt of strangt,“ sagði Broos. Suður-Afríka heldur áfram keppni í A-riðli gegn Tékklandi í Atlanta á fimmtudag, áður en liðið lýkur riðlakeppninni gegn Suður-Kóreu í Guadalupe þann 24. júní. "I don’t think it was a red card, when I see what happened with Messi yesterday, I don’t agree certainly not, there was not even a VAR with Messi."Bafana Bafana head coach says the red card and three-match suspension of Themba Zwane is too severe – citing the incident of… pic.twitter.com/axad2OHEWZ— iDiski Times (@iDiskiTimes) June 17, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Körfubolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport „Þær héldu að þær myndu labba yfir okkur“ Sport Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram Handbolti Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Fleiri fréttir Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og boðað til fleiri breytinga Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Arsenal náði sigurmarki gegn Emelíu í uppbótartíma Svekkjandi jafntefli hjá Glódísi Perlu og Cecilía Rán hélt hreinu í Íslendingaslag Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira