Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar 18. júní 2026 16:31 Komugjöld í sjúkraþjálfun komu fyrst fram á tímabili langvarandi samningsleysis milli Sjúkratrygginga Íslands og sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara. Þau voru kynnt sem tímabundin lausn á meðan deilan stóð yfir og kostnaðurinn færðist yfir á sjúklinga. Þann 1. júní 2024 tók gildi fimm ára samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara. Við undirritun hans kom fram að komugjöld féllu niður og samningurinn var kynntur sem langtímalausn sem myndi bæta stöðugleika og aðgengi að þjónustunni. Nú, aðeins tveimur árum síðar, standa hins vegar til breytingar á lögum sem fela í sér aukna gjaldtöku fyrir endurhæfingarþjónustu á borð við sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og aðra meðferð. Viðmiðið er 1.000–1.500 krónur fyrir hverja komu en meðferðaraðilar geta innheimt hærri gjöld. Gjöldin leggjast einnig á börn þrátt fyrir að þau eigi almennt rétt á gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu. Í áratugi hefur verið lögð áhersla á að allir eigi að hafa aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Greiðsluþátttökukerfið var byggt upp til að jafna stöðu fólks og vernda þá sem þurfa mest á þjónustunni að halda. Nú er verið að stíga skref í gagnstæða átt. Fyrir fólk með gigtarsjúkdóma og aðra langvinna sjúkdóma er endurhæfing ekki val eða þægindi heldur nauðsynlegur hluti meðferðar. Sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og önnur endurhæfing hjálpa fólki að viðhalda hreyfigetu, draga úr verkjum, sinna vinnu og námi og halda sjálfstæði sínu. Það sem gleymist oft er að hér er ekki um einskiptiskostnað að ræða. Margir þurfa meðferð vikulega eða oftar árum saman, jafnvel alla ævi. Það sem virðist lítið gjald á blaði verður því veruleg fjárhagsleg byrði þegar það leggst á aftur og aftur. Í gögnum stjórnvalda hefur komið fram að aukin greiðsluþátttaka geti haft áhrif á þjónustunotkun. En fyrir fólk með langvinna sjúkdóma er endurhæfing ekki þjónusta sem það velur sér að hentugleika heldur mikilvægur hluti af nauðsynlegri meðferð sem eykur möguleika þeirra að geta lifað sjálfstæður lífi. Hér vaknar grundvallarspurning: Er endurhæfing nauðsynleg meðferð eða þjónusta sem réttlætanlegt er að draga úr með fjárhagslegum hindrunum? Þegar kostnaður hækkar munu sumir fækka tímum eða hætta meðferð, ekki vegna þess að þeir þurfi hana ekki heldur vegna þess að þeir hafa ekki efni á henni. Afleiðingarnar geta orðið minni hreyfigeta, skert starfsgeta, aukin veikindi og meiri þörf fyrir stuðning frá heilbrigðis- og velferðarkerfinu síðar. Kostnaðurinn hverfur því ekki endilega heldur færist til. Sumir neyðast til að minnka við sig vinnu og aðrir hverfa tímabundið eða varanlega af vinnumarkaði. Þeir sem veikjast hafa jafnframt oft þegar orðið fyrir tekjutapi vegna sjúkdóms síns. Gjöld af þessu tagi leggjast ekki jafnt á alla. Þau leggjast þyngst á þá sem eru oftast veikir og þurfa reglulega á meðferð að halda. Þess vegna snýst umræðan ekki fyrst og fremst um tekjur ríkisins heldur um það hvers konar heilbrigðiskerfi við viljum hafa. Spurningin sem stjórnvöld þurfa að svara er því ekki fyrst og fremst hversu miklar tekjur megi hafa af komugjöldum, heldur hvaða áhrif þau hafa á aðgengi fólks að nauðsynlegri meðferð. Við eigum ekki að mæla árangur heilbrigðiskerfisins í því hversu mikinn kostnað tekst að færa af ríkissjóði yfir á sjúklinga, heldur í því hversu vel okkur tekst að halda fólki heilbrigðu, sjálfstæðu og virku í samfélaginu. Endurhæfing er ekki munaðarvara. Hún er forsenda þess að þúsundir Íslendinga geti viðhaldið heilsu sinni, sjálfstæði og virkri þátttöku í samfélaginu. Aðgangur að nauðsynlegri meðferð á að ráðast af þörfum fólks, ekki stöðu bankareikningsins. Höfundur er formaður Gigtarfélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjúkratryggingar Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar