Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar 18. júní 2026 08:01 Markmið laga um velferð dýra nr. 55/2013 er skýrt, að tryggja velferð dýra, að þau séu laus við vanlíðan og aðra þjáningu og að þau geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt. Þegar Matvælastofnun (MAST) grípur til þess íþyngjandi neyðarúrræðis að vörslusvipta búfénað vegna alvarlegrar vanhirðu á sveitabæjum, er það gert á grundvelli þessara lagalegu markmiða. Almenningur dregur jafnan þá ályktun að með aðgerðunum sé velferð dýranna tryggð til frambúðar. En þegar rýnt er í framkvæmdina vakna upp áleitnar spurningar um ferlið sem tekur við í kjölfarið. Í reynd sýnir sig að oft er farin sú leið, sem virðist næsta sjálfgefið skref í verkferlum stofnunarinnar, að senda vörslusviptan búfénað til slátrunar eða aflífunar fljótlega eftir að hann er fjarlægður af búinu. Þessi ráðstöfun á sér stað jafnvel þótt aðrir bændur í nágrenninu eða ábyrgir aðilar lýsi yfir skýrum vilja og hafi getu til að kaupa eða hýsa dýrin tímabundið. Við þetta vaknar sú spurning hvort sú dýravernd sem lögin kveða á um sé raunverulega virkjuð eða hvort framkvæmdin stýrist frekar af því að ljúka málum á sem einfaldastan hátt fyrir stjórnsýsluna. Lagaleg staða og ráðstöfunarheimildir Fyrir liggur að þegar MAST vörslusviptir búfé annað hvort á grundvelli 37. eða 38. gr. laga nr. 55/2013, verður stofnunin ekki eigandi dýranna. Hún fer aðeins með tímabundna vörslu og umráð á kostnað upphaflega eigandans. Lögin veita stofnuninni rúmar heimildir til að ráðstafa dýrunum, selja þau til lífs, bjóða þau upp eða láta aflífa þau. Í lögskýringargögnum kemur fram að stjórnvöldum sé ekki ætlað að halda búfé í vörslu sinni til lengri tíma vegna þess flækjustigs og kostnaðar sem fylgir því að hýsa og fóðra dýrin. Ákveðið úrræðaleysi og skortur á innviðum verður þannig oft til þess að slátrun vörslusviptra dýra verður fljótlegasta og hagkvæmasta lausnin frá sjónarhóli kerfisins. Hins vegar getum við ekki fallist á það að skilvirkni og þægindi stjórnsýslunnar eigi að ganga framar grundvallarreglum stjórnsýsluréttarins. Meðalhófsreglan og rannsóknarskylda stjórnvalda Meðalhófsreglan leggur ríkar skyldur á stjórnvöld þegar teknar eru íþyngjandi ákvarðanir. Þess skal gætt að lögmætu markmiði verði ekki náð með öðru og vægara móti og að ekki sé farið strangar í sakirnar en nauðsyn krefur. Að aflífa dýr verður að teljast afdrifaríkasta ráðstöfun sem völ er á. Í landbúnaði er iðulega fyrir hendi öflugt tengslanet og oftar en ekki eru bændur í næsta nágrenni sem hafa rými, fóður og þekkingu til að taka við dýrum til að koma í veg fyrir aflífun þeirra. Ef fyrir hendi er raunhæfur möguleiki að koma búfénu í varanlegt fóstur eða umsjá annarra hæfra bænda, án verulegra tafa eða kostnaðar fyrir ríkið, þá samrýmist það illa meðalhófsreglunni ef stjórnvöld velja samt sem áður að aflífa heilan bústofn. Hér reynir einnig beint á rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Stofnuninni ber skylda til að tryggja að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin. Það felur í sér að kanna verður af fullri alvöru hvort vægari og mannúðlegri úrræði séu tiltæk áður en ákvörðun um slátrun er endanlega staðfest. Hér á landi finnast því miður dæmi um að slíkt hafi ekki verið gert; jafnvel þegar stofnuninni hefur verið bent á hæfa aðila til að taka við bústofni hefur þeim ábendingum verið hafnað án rökstuðnings. Framtíðarsýn og faglegri verkferlar Í nútíma löggjöf eru dýr viðurkennd sem skyni gæddar verur en ekki einungis sem dauðir hlutir eða framleiðslutæki. Ef framkvæmdin snýst fyrst og fremst um að leysa lagalegt og fjárhagslegt vandamál með tafarlausri aflífun, í stað þess að hafa velferð dýranna að leiðarljósi, þá hefur tilgangi laganna ekki verið náð. Stjórnvöldum ber að starfa eftir fyrirmælum og í anda þeirra laga sem þeim er falið að framfylgja. Ef skortur á formlegu kerfi veldur því að heilbrigðum dýrum er fórnað eftir vörslusviptingu, þarf að endurskoða reglugerðir og verkferla. Tryggja þarf gagnsærri ferla þar sem hæfum aðilum innan landbúnaðarins er gert kleift að stíga inn og bjóða fram lausnir á skipulegan hátt. Lokaorð Dýravernd í íslenskum landbúnaði á ekki að takmarkast við það að fjarlægja dýr úr óviðunandi aðstæðum, heldur verður hún að tryggja faglega og mannúðlega meðferð þeirra á næsta stigi ferilsins. Meðan vörslusviptingu á búum lýkur eins oft og raun ber vitni með slátrun bústofnsins, án þess að vægari úrræði séu raunverulega rannsökuð, verður að telja að framkvæmdina skorti þá mannúð sem löggjafinn stefndi að með lögum um velferð dýra. Matvælastofnun þarf að endurskoða verkferla sína við vörslusviptingu í landbúnaði. Stjórnvöld verða að tryggja að lögum um velferð dýra sé framfylgt með meðalhóf og rannsóknarskyldu að leiðarljósi, þar sem lokatakmarkið er raunveruleg björgun dýranna en ekki einfaldasta lausnin fyrir stjórnsýsluna. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sævar Þór Jónsson Mest lesið Halldór 08.08.26 Halldór Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt Skoðun Skoðun Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Skoðun Draugasögur nútímans Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen skrifar Sjá meira
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar