Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 16. júní 2026 19:04 Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair. Sigurjón Ólason Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segist ekki eiga von á því að fleiri flugferðum verði aflýst vegna mönnunarvanda eftir að félagið og Félag íslenskra atvinnuflugmanna skrifuðu undir sameiginlega yfirlýsingu í dag.
Icelandair og flugmenn sammæltumst um það á fundi hjá sáttasemjara að vinna samkvæmt verkstýrðri áætlun ríkissáttasemjara á meðan viðræðum stendur. Nýr samningur verði undirritaður fyrir 15. september næstkomandi. Jón Þór Þorvaldsson formaður FÍA orðaði það þannig að deiluaðilar hefðu ákveðið að snúa bökum saman og að flugmenn myndu gera allt sem í þeirra valdi stendur í sumar til að tryggja að allt gangi smurt fyrir sig í sumar. Yfirvegun í viðræðum næstu vikur og mánuði Bogi Nils Bogason forstjóri kom í myndver og sagði þetta mjög farsæla niðurstöðu. „Það hefur verið ákveðin ókyrrð í kringum þetta verkefni en við erum sammála um að fara í þetta af meiri yfirvegun næstu vikurnar og reyna að ná lendingu í síðasta lagi 15. september, undir handleiðslu sáttasemjara og samkvæmt tillögu hans,“ sagði Bogi. Staðan sem upp var komin hafi ekki verið viðunandi. Hann áréttaði þó að aflýstum flugferðum í maímánuði hefði ekki fjölgað nema um 0,7 prósentustig á milli ára. „Það getur alltaf eitthvað komið upp á í flugi. Í fyrra í maímánuði flugum við 98,7 prósent af áætlunarflugum og í maí núna voru það 98 prósent þannig að munurinn er 0,7 prósent. Veður og tæknilegar ástæður geta orðið þess valdandi að við þurfum að aflýsa flugum.“ „En þessi yfirlýsing tryggir ákveðna friðarskyldu þangað til að samningar hafa náðst,“ sagði hann. Yfirvinnukaup nauðsynlegur sveigjanleiki Aðspurður sagði Bogi að það hafi alltaf verið þannig að félagið kaupi frí flugmanna til að anna árstíðarbundnu álagi og ef eitthvað óvænt kemur upp á. Þar sé um nauðsynlegan sveigjanleika að ræða í rekstri sem þessum. „Þetta er fyrirkomulag sem hefur verið til staðar til margra ára hjá okkur.“
Icelandair Kjaramál Flug Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Pútín sló öll met Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Sjá meira