Skýrar línur og strangari löggjöf um vindorku Jóhann Páll Jóhannsson skrifar 16. júní 2026 20:00 Þegar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur var mynduð einsettum við okkur að marka vindorkunýtingu skýrari leikreglur með áherslu á umhverfisvernd, vilja nærsamfélagsins og hagkvæmni raforkukerfisins. Þess vegna er fagnaðarefni að Alþingi sé nú að ljúka umfjöllun um frumvarp sem felur í sér eftirfarandi: ● Vindorkunýting verður útilokuð á svæðum sem hafa verið friðlýst eða njóta sérstakrar verndar, svo sem á Ramsar-svæðum, svæðum á heimsminjaskrá UNESCO og B-hluta náttúruminjaskrár. ● Fallið er frá hugmyndum fyrri ára um flýtimeðferð vindorkugarða fram hjá rammaáætlun. Í staðinn er vindorkan felld kyrfilega undir rammaáætlunarferlið. ● Áhrifavald nærsamfélags er hámarkað með því að gera formlega afstöðu sveitarfélaga að grundvallarbreytu við mat á vindorkukostum. ● Horft verður sérstaklega til áhrifa á fuglalíf og óbyggð víðerni, en jafnframt hvort vindorkukostur sé til þess fallinn að styðja við atvinnu- og byggðaþróun á viðkvæmum svæðum og uppbyggingu raforkuflutningskerfisins. Vindorka gegnir ómissandi hlutverki í þeirri orkuskiptabyltingu sem nú á sér stað um allan heim. Þegar vel tekst til getur vindorkunýting verið afturkræfari og valdið minna vistkerfisraski en aðrir orkukostir. Það breytir ekki því að um er að ræða stór mannvirki sem hafa mikil sjónræn áhrif og geta valdið hörðum deilum í sveitum landsins. Þá hefur Landsnet bent á að hröð aukning vindorku í orkubúskap Íslands myndi fela í sér verulegar áskoranir fyrir raforkuflutningskerfið. Með hliðsjón af þessu hefur verið samstaða um það meðal stjórnarflokkanna, og raunar flestra ef ekki allra flokka á Alþingi, að fara varlega þegar kemur að vindorkunýtingu. Þetta mun endurspeglast í stefnu stjórnvalda um öflun raforku sem lögð verður fram á næsta löggjafarþingi. Jafnframt mun ég gera nauðsynlegar reglugerðarbreytingar til þess að skýra kröfur um gagnaskil vegna vindorkukosta og tryggja skilvirkari meðferð þeirra í rammaáætlunarferlinu. Markmið ríkisstjórnarinnar er skýrt: að standa vörð um náttúru Íslands og tryggja að vindorkunýting fari einvörðungu fram á örfáum afmörkuðum svæðum í sátt við nærsamfélagið, þar sem hún er til þess fallin að styðja við atvinnu- og byggðaþróun og hagkvæma uppbyggingu raforkuflutningskerfisins. Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóhann Páll Jóhannsson Vindorka Orkumál Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Þegar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur var mynduð einsettum við okkur að marka vindorkunýtingu skýrari leikreglur með áherslu á umhverfisvernd, vilja nærsamfélagsins og hagkvæmni raforkukerfisins. Þess vegna er fagnaðarefni að Alþingi sé nú að ljúka umfjöllun um frumvarp sem felur í sér eftirfarandi: ● Vindorkunýting verður útilokuð á svæðum sem hafa verið friðlýst eða njóta sérstakrar verndar, svo sem á Ramsar-svæðum, svæðum á heimsminjaskrá UNESCO og B-hluta náttúruminjaskrár. ● Fallið er frá hugmyndum fyrri ára um flýtimeðferð vindorkugarða fram hjá rammaáætlun. Í staðinn er vindorkan felld kyrfilega undir rammaáætlunarferlið. ● Áhrifavald nærsamfélags er hámarkað með því að gera formlega afstöðu sveitarfélaga að grundvallarbreytu við mat á vindorkukostum. ● Horft verður sérstaklega til áhrifa á fuglalíf og óbyggð víðerni, en jafnframt hvort vindorkukostur sé til þess fallinn að styðja við atvinnu- og byggðaþróun á viðkvæmum svæðum og uppbyggingu raforkuflutningskerfisins. Vindorka gegnir ómissandi hlutverki í þeirri orkuskiptabyltingu sem nú á sér stað um allan heim. Þegar vel tekst til getur vindorkunýting verið afturkræfari og valdið minna vistkerfisraski en aðrir orkukostir. Það breytir ekki því að um er að ræða stór mannvirki sem hafa mikil sjónræn áhrif og geta valdið hörðum deilum í sveitum landsins. Þá hefur Landsnet bent á að hröð aukning vindorku í orkubúskap Íslands myndi fela í sér verulegar áskoranir fyrir raforkuflutningskerfið. Með hliðsjón af þessu hefur verið samstaða um það meðal stjórnarflokkanna, og raunar flestra ef ekki allra flokka á Alþingi, að fara varlega þegar kemur að vindorkunýtingu. Þetta mun endurspeglast í stefnu stjórnvalda um öflun raforku sem lögð verður fram á næsta löggjafarþingi. Jafnframt mun ég gera nauðsynlegar reglugerðarbreytingar til þess að skýra kröfur um gagnaskil vegna vindorkukosta og tryggja skilvirkari meðferð þeirra í rammaáætlunarferlinu. Markmið ríkisstjórnarinnar er skýrt: að standa vörð um náttúru Íslands og tryggja að vindorkunýting fari einvörðungu fram á örfáum afmörkuðum svæðum í sátt við nærsamfélagið, þar sem hún er til þess fallin að styðja við atvinnu- og byggðaþróun og hagkvæma uppbyggingu raforkuflutningskerfisins. Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar