Körfubolti

Voru risinn fyrir ára­tug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks

Aron Guðmundsson skrifar
Lið Snæfells sem varð tvöaldur meistari árið 2016
Lið Snæfells sem varð tvöaldur meistari árið 2016 vísir/hanna

Stjörn meistaraflokks Snæfells greindi frá því í dag að félagið myndi ekki senda kvennalið til leiks á komandi tímabili í körfubolta. Áratugur er síðan Snæfell drottnaði yfir íslenskri kvennakörfu.

Ástæða ákvörðunarinnar er sú að of fáir leikmenn eru tiltækir til að halda úti samkeppnishæfu liði á næsta tímabili en Snæfell spilaði í fyrstu deild kvenna á síðasta tímabili.

„Ákvörðunin var tekin að vel ígrunduðu máli eftir að ýmsir möguleikar höfðu verið skoðaðir til að halda liðinu úti,“ segir í færslu stjórnar meistaraflokks Snæfells á samfélagsmiðlum. „Það er einlæg stefna stjórnarinnar að um verði að ræða tímabundinn dvala með það að markmiði að byggja upp sterkan grunn fyrir endurkomu liðsins.“

Körfuboltasamfélagið í Stykkishólmi búi að mörgum styrkleikum, svo sem góða íþróttaaðstöðu, öfluga þjálfun og öflugt skólastarf allt upp á framhaldsskólastig.

„Með það að leiðarljósi vonumst við til þess að hægt verði að þróa enn frekar þetta góða umhverfi þannig að það verði áfram ákjósanlegur valkostur fyrir unga körfuboltaiðkendur til framtíðar. Þrátt fyrir þessa styrkleika stendur félagið, líkt og mörg félög á landsbyggðinni, frammi fyrir áskorunum þegar kemur að því að halda ungum iðkendum áfram í íþróttastarfi eftir grunnskóla.

Á meðan á þessum dvala kvennaliðsins stendur verður sérstök áhersla lögð á uppbyggingu yngri flokka og markvissa undirbúningsvinnu með það að markmiði að skrá lið aftur til keppni um leið og forsendur leyfa.“

Áratugur er síðan að kvennalið Snæfell varð síðast Íslandsmeistari í körfubolta árið 2016. Það var þriðja tímabiliði í röð sem liðið var Íslandsmeistari og jafnframt þriðji Íslandsmeistaratitill kvennaliðs Snæfells frá upphafi. Það sama ár varð Snæfell einnig bikarmeistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×