Þingheimur lokar augum og eyrum Ásmundur E. Þorkelsson, Hörður Þorsteinsson og Sigrún Guðmundsdóttir skrifa 16. júní 2026 12:02 Það eru mikil vonbrigði að sjá nú stefna í að tvö umfangsmikil frumvörp um framtíð heilbrigðiseftirlits verði knúin í gegnum Alþingi þrátt fyrir ítrekuð og vel rökstudd varnaðarorð þeirra sem þekkja málaflokkinn best. Í þessum málum hefur enginn lagst gegn umbótum. Samtök heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi, sveitarfélög og fleiri hafa tekið undir markmið um öflugt, samræmt og skilvirkt eftirlit. Ágreiningurinn snýst um leiðina. Hann snýst um það hvort rétt sé að rífa upp kerfi sem byggir á staðbundinni þekkingu og áratuga reynslu, án þess að sýnt hafi verið fram á að nýtt kerfi verði betra, einfaldara eða öruggara. Nefndarálitin sem nú liggja fyrir gera málið enn alvarlegra. Þar er ekki hægt að lesa að gagnrýnin hafi verið marklaus. Þvert á móti fjalla nefndarálitin um mikilvægi staðbundinnar þekkingar, hættu á flækjustigi, tvíverknaði, hækkun eftirlitsgjalda, óskýra ábyrgð, stöðu vatnsverndar og tengsl við neyðarstjórnir sveitarfélaga. Með öðrum orðum virðist nefndunum ljóst að varnaðarorðin eigi við rök að styðjast. Samt á að halda áfram. Hér kemur upp í hugann gamla myndin af öpunum þremur. Einn heldur fyrir augun, annar fyrir eyrun og sá þriðji fyrir munninn. Þingheimur virðist nú allur hafa brugðið sér í þessar stellingar. Augun lokast fyrir því sem blasir við í umsögnum og gögnum málsins. Eyrun lokast fyrir þeim sem hafa áratuga reynslu af framkvæmd eftirlitsins. Og munnurinn lokast þegar tímabært væri að segja skýrt að lög sem eru svona illa undirbúin eigi ekki að samþykkja í þessari mynd. Það er ekki nóg að segja að ráðherra muni fylgjast með eða að stofnanir muni síðar vinna saman. Ekki heldur að vísa mikilvægum atriðum til reglugerða, innleiðingarvinnu eða góðs vilja þeirra sem taka við þegar lögin eru þegar samþykkt. Lög eiga að vera skýr áður en þau eru afgreidd. Ábyrgð á ekki að hanga í lausu lofti eftir atkvæðagreiðslu. Hér er ekki verið að fást við tæknileg smáatriði. Hér er verið að breyta ábyrgð á verkefnum sem snerta matvælaöryggi, neysluvatn, hollustuhætti, mengunarvarnir, viðbrögð við vá og þjónustu við íbúa og atvinnulíf um allt land. Ef afleiðingin verður lengri boðleiðir, fleiri snertifletir, óljós ábyrgð og tap á staðbundinni þekkingu, þá verður ekki um einföldun að ræða. Við blasir flóknara kerfi með veikari tengsl við fólkið og staðina sem eftirlitið á að þjóna. Alþingi ber hér mikla ábyrgð. Þingmenn eiga ekki að vera afgreiðslustöð ráðuneyta. Á þeim hvílir skylda til að spyrja hvort frumvörp séu nægilega undirbúin, skýr og líkleg til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Ef frumvörpin verða samþykkt, í þeirri mynd sem nú stendur til, er það ekki vegna þess að ekki hafi verið varað við. Líklegra er að þá hafi þingmenn sett upp skollaeyrun og jafnvel haldið haldið höndum yfir augum og munni til öryggis. Slík niðurstaða væri Alþingi til lítils sóma og gæti reynst almenningi, sveitarfélögum og atvinnulífi dýrkeypt. Höfundar er stjórnarmenn í Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi. Ásmundur er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, Hörður er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness og Sigrún er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar