Handbolti

Magdeburg fékk bronsið

Andri Broddason skrifar
Gísli Þorgeir Kristinsson þarf að sætta sig við bronsið í Meistaradeild Evrópu í handbolta
Gísli Þorgeir Kristinsson þarf að sætta sig við bronsið í Meistaradeild Evrópu í handbolta Ronny Hartmann/Getty Images

Íslendingaliðið Magdeburg endaði í þriðja sæti Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa unnið Álaborg í leik upp á bronsið. Bæði lið töpuðu undanúrslitaleik í gær.

Magdeburg var með yfirhöndina allan leikinn þegar liðið mætti Álaborg. Leikurinn endaði með sex marka sigri Magdeburg, 32-26.

Fyrstu tíu mínútur leiksins voru jafnar en eftir það skoraði Magdeburg fjögur mörk í röð og síðan þá var aldrei aftur snúið. Álaborg náði aldrei að minnka bilið og Magdeburg hafði svör við nær öllum brögðum Álaborgar.

Gísli Þorgeir Kristjánsson var með fjögur mörk og gaf sex stoðsendingar og félagi hans í Magdeburg, Ómar Ingi Magnússon, skoraði fjögur mörk.

Markahæstu leikmenn leiksins voru Albin Lagegren og Felix Claar með sex mörk fyrir Magdeburg. Einnig skoraði Mads Hoxer Hangaard sex mörk fyrir Álaborg.

Magdeburg fær þá bronsið í Meistaradeild Evrópu eftir að hafa unnið Meistaradeildina á síðasta tímabili. Á eftir keppa Barcelona og Fuchse Berlin í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×