Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar 14. júní 2026 07:03 Hingað til hefur ekki þótt mikill mannsbragur af því að plata aðra með óvönduðum ráðum til að borga reikninga sína. Bíta svo höfuðið af skömminni með því að reyna að telja þeim sem greiðir allt bixið trú um að þau glati sjálfstæði sínu og persónuleika ef ekki er borgað með bros á vör. Verði sjálfum sér auk þess til skammar og niðurlægingar því einhver verður að borga! Þannig nær tvískinnungurinn hæstu hæðum sem endar gjarnan með því að þeir sem eru beittir þessari óbilgirni fá samviskubit og borga af þrælsótta einum saman. Svona er nú komið fyrir ungu fólki á Íslandi ásamt minni og meðalstórum fyrirtækjum sem eru föst í krónuhagkerfinu og geta ekki nýtt þá kosti sem alþjóða gjaldmiðlar bjóða upp á. Þessir hópar verða því einir að taka á sig hækkun vaxta sem stjórnvöld og bankakerfið ákveða hverju sinni hér á landi. Hinir sleppa enda þótt þeir eigi ekki síður sök á verðbólgunni. Unga fólkið sem er skuldum vafið við að koma sér þaki yfir höfuðið og minni fyrirtæki sem gjarnan stunda kostnaðarsama þróunarvinnu og nýsköpun. Þessi fyrirtæki eru lokuð inn í krónuhagkerfinu á meðan ekkert þeirra fyrirtækja sem hafa komist í evru- eða dollaraumhverfið láta sér detta í hug að leita til aftur til krónunnar; engin dæmi eru til um slíkt afturhvarf sem segir auðvitað sína sögu. Sem sagt: hér lifa tvær þjóðir í sama landinu við gjörólíkar aðstæður og mismunun sem því fylgir. Vill fólk festa þá framtíð í sessi með því að hafna að ræða aðra valkosti? Við sem eru komin á efri árin og laus við allar skuldir sleppum algjörlega við vaxtahækkanir sem ætlað er að slá á verðbólgu sem þó er ekki síður okkur að kenna vegna kaupa á þörfum og óþörfum hlutum, ferðalögum um víða veröld og frístundaiðkun sem oft kostar sitt. Nei, við eyðum og eyðum og horfum þegjandi á meðan á afkomendur okkar sem eru að sligast undan háum vöxtum sem þýða að þeir eru að borga íbúðirnar sínar þrisvar sinnum á meðan við hin brosum góðlátlega að þessu basli unga fólksins. Þvílík framtíð – þvílík stefna – þvílík og önnur eins pólitík. Svo er þjóðin spurð hvort hún vilji kanna aðra kosti án þess að skuldbinda sig fyrir fram. Renna þá tvær grímur á marga þegar þeir heyra að jafna eigi kjör fyrirtækja og einstaklinga í þessu landi. Er þetta ekki enn eitt samsæri útlendinga til að sölsa undir sig auðlindir landsins og drottna yfir þjóðinni? Þessi kenning nýtur töluverðs fylgis þar sem margir telja sér trú um að ójöfnuður af þessu tagi sé forsenda fullveldisins. Verji okkur auk þess fyrir ásælni ESB og ímynduðum fjendum okkar á meginlandinu sem vilja gleypa okkur með húð og hári eins og andstæðingar EES-samningsins héldu fram fyrir þrjátíu árum. Allt reyndist það marklaust og að engu hafandi. Bara bull. En hvar eru fulltrúar unga fólksins í stjórnmálaflokkunum nú? Þegar ég var ungur og virkur í einum ungliðahópnum (Möðruvallahreyfingunni í Framsókn) vorum við ekki að hlífa forystu flokksins ef okkur þótti þau ekki halda sig við stefnu hans og hugsjónir. Sama gilti um Eimreiðarhópinn innan Sjálfstæðisflokksins, Bandalag jafnaðarmanna innan Alþýðuflokksins og Æskulýðsfylkinguna og hvað þessi ágætu félög hétu öll. Þau stunduðu sífellda gagnrýni á forystu flokkanna og þeim haldið við efnið af festu og áræðni.Nú heyrist nákvæmlega ekki neitt frá forystu ungliðahreyfinganna og engu líkara en þeim sé alveg sama um slæma meðferð á unga fólkinu í krónuhagkerfinu nema að hlýðniæfingar innan flokkanna hafi borið svona ríkulegan ávöxt. Algjör þögn og unga fólkið borgar og borgar og telur jafnvel einskis vert að skoða möguleika á breytingum til batnaðar á þessu sviði með því að íhuga aðild að ESB. Á sama hátt hafa samtök atvinnulífsins kæft alla umræðu innan sinna raða um kosti þess og galla að vera fullgildir aðilar að ESB og taka upp evru fyrir öll aðildarfyrirtækin en ekki bara útvalin eins og nú er raunin. Á meðan er hægt að láta aðra borga eigin reikninga án þess að hreyfa við samvisku stærri fyrirtækja og okkar sem skuldlaus erum. Þá er næsta víst að misréttið verður fest í sessi til áratuga í landinu bláa. Sem betur fer benda síðustu skoðanakannanir til að meirihluti landsmanna segi já næsta höfuðdag og í framhaldinu verði gengið til samninga við ESB, sem síðan verða vegnir og metnir af þjóðinni í annarri atkvæðagreiðslu. Þegar þangað er komið þarf ekki að þrátta um hvað þar stendur; það liggur hreint og klárt fyrir. Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Sverrisson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Látum hina borga Ingólfur Sverrisson Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Halldór 13.06.2026 Halldór Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar