Körfubolti

Elvari og fé­lögum sópað í sumar­frí

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elvar Már Friðrikssson fékk ekki að koma inn á völlinn í kvöld.
Elvar Már Friðrikssson fékk ekki að koma inn á völlinn í kvöld. Getty/Javier Borrego

Elvari Má Friðrikssyni og félögum í La Laguna Tenerife tókst ekki að tryggja sér aukaleik í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Barcelona í spænska körfuboltanum.

Barcelona vann níu stiga sigur á Kanaríeyjum í kvöld, 85-76, og einvígið þar með 3-0. Barcelona mætir annaðhvort Valencia Basket eða Asisa Joventut í úrslitaeinvíginu.

La Laguna Tenerife var með forystuna í fyrri hálfleik og var átta stigum yfir í hálfleik, 42-34. Börsungar unnu þriðja leikhlutann 22-16 og voru síðan mun betri í lokaleikhlutanum.

Barcelona vann tvo fyrstu leikina sem fóru báðir fram á heimavelli þeirra. Leikurinn í kvöld var fyrsti heimaleikur Tenerife en liðið hefði þurft að vinna til að fá annan heimaleik.

Elvar Már fékk ekkert að spila í kvöld ekki frekar en í leik tvö. Hann spilaði mun meira í einvíginu á móti Real Madrid í átta liða úrslitum þar sem Tenerife-menn slógu óvænt út sjálfa deildarmeistarana.

Ástralinn Patty Mills hefur verið frábær með Tenerife í úrslitakeppninni en skoraði aðeins tvö stig á 21 mínútu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×