Uppsagnir leggjast þungt á Vopnafjörð Agnar Már Másson skrifar 13. júní 2026 15:14 Íris Edda Jónsdóttir sveitarstjóri Vopnafjarðar. Sveitarstjóri á Vopnafirði segir nýlegar uppsagnir hjá fiskvinnslu Brims í bænum vera mikið áfall fyrir sveitarfélagið. Framkvæmdastjóri uppsjávarvinnslu hjá Brim segir uppsagnirnar hafa átt sér aðdraganda frá árinu 2018.
Greint var frá því á Vísi í vikunni að Brim hefði sagt upp tuttugu af sínum sjötíu starfsmönnum í uppsjávarvinnslu á Vopnafirði. Þeim voru í staðinn boðnir lausasamningar til loka nóvember. Sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps segir uppsagnirnar áfall fyrir bæjarfélagið, þar sem búa ríflega 650 manns. „Þetta eru mjög erfiðar fréttir og uppsögn af þessari stærðargráðu hefur mjög mikil áhrif á okkur,“ segir Íris Edda Jónsdóttir, sveitarstjóri Vopnafjarðar. Hún segir að sveitarstjórnin hafi óskað eftir fundi með fulltrúum Brims á næstunni vegna málsins. Hjálmar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri uppsjávarsviðs Brims, segir að uppsagnirnar hafi átt margra ára aðdraganda. Starfsemi fiskvinnslunnar hafi átt erfitt uppdráttar vegna árstíðarsveifla frá því að félagið hætti bolfisksvinnslu á Vopnafirði 2018. Síðan þá hafi ekki verið nóg af verkefnum fyrir alla sjötíu starfsmenn vinnslunnar. „Þessi lokun bolfiskvinnslunnar gerði það að verkum að vinnsla á fiski á Vopnafirði varð miklu meira árstíðabundin og við vorum oft að sjá svona um jafnvel innan við 18 vinnsluvikur á ári,“ segir Hjálmar. Fiskvinnslan hafi reynt að finna aukaverkefni fyrir alla starfsmenn en það ekki gengið vel. „Þetta er náttúrulega bara leiðinlegt mál og eitthvað sem hefði átt að taka á 2018,“ bætir Hjálmar við.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Sjá meira