„Það er ástæða fyrir bólgunni“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 13. júní 2026 12:03 Heather Mills og fyrrverandi eiginmaður hennar Paul McCartney. Heather hóf framleiðslu á No Bloat-réttunum í kjölfar fimm mánaða spítalainnlagnar. Vísir/Ísland í dag Í kjölfar slyss hóf töffarinn Heather Mills, fyrrverandi eiginkona Bítilsins Paul McCartney, framleiðslu á No Bloat, frostþurrkuðu heilsufæði. No Bloat er vegan fæði sem hentar vel þeim sem kljást við meltingarvandamál. Vala Matt ræddi við Heather í nýjasta þætti Íslands í dag.
Heather Mills, fyrrverandi eiginkona Bítilsins Paul McCartney, lenti í slysi og missti framan af öðrum fætinum. Í kjölfar aðgerðar fór hún að skoða það hvernig hollur matur getur hjálpað líkamanum að styrkjast. Svoleiðis byrjaði ævintýrið No Bloat, frostþurrkaður, náttúrulegur vegan matur án allra aukaefna. Í spilaranum hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni: Heather er hérlendis á vegum Elínar Kristinar, eða Ellu Stínu, sem hefur svoleiðis slegið í gegn með sínum vegan vörum. Ferlið segir Heather hafa byrjað þegar hún lá á spítala í fimm mánuði í kjölfar slyssins, þar sem hún braut mjaðmagrind, missti hluta fótar og höfuðkúpubrotnaði. Vinkona hennar hafi komið og ætlað að kenna henni hollara mataræði. Hún hafi kynnt hana fyrir grænkerafæði og Heather hafi verið opin fyrir því að prófa. „Ég jafnaði mig á tveimur vikum. Þá var ekki aftur snúið,“ segir hún og bætir við: „Ég hef verið grænkeri síðan.“ Seinna var Heather í Kambódíu í góðgerðarheimsókn þegar hún var bitin af beinbrunaflugu og veiktist af Lyme-sjúkdómnum. Eftir það hafi hún ekki getað borðað grænkerafæðið án mikilla verkja og iðrabólgu (e. IBS). Þrátt fyrir að fara til læknis þar sem þurfti að fjarlægja botnlangann og gallblöðruna leið henni ekkert betur. „Mér fannst þetta galið svo ég rannsakaði meltinguna.“ segir hún. Í þeirri vegferð áttaði hún sig á því að laukur og hvítlaukur væru sökudólgarnir. „Það er í öllu og ég dýrka hvítlauk og lauk,“ segri hún. No Bloat-réttirnir henti fjölbreyttum hópi fólks Hún segir það hafa verið mikla áskorun að láta hreinan mat bragðast vel. „Ég gerði það fyrir fólk með magavanda,“ segir hún. Hún sé með átta mismunandi No Bloat-rétti, hver innblásinn af matargerð mismunandi landa. Fyrst hafi Heather selt 100 þúsund skammta og lagt fyrir könnun fyrir viðskiptavini. Niðurstöðurnar hafi sýnt að helmingur þeirra hafi keypt réttina vegna magavandræða en hinn helmingurinn vegna þess að þau ætluðu sér að léttast. Hún segir réttina einnig henta fólki sem stundar mikla útivist, flugfreyjum og -þjónum og þeim sem hafi ekki mikinn tíma í eldamennsku. Mikilvægt að hlusta á líkamann Hún hafi misst fóstur fjórum sinnum og tvær utanlegsmeðgöngur áður en hún eignaðist dóttur sína. Læknar höfðu sagt henni að hún gæti ekki eignast börn en skyndilega varð hún ólétt og eignaðist dóttur sína fjórum vikum fyrir settan dag. „Það er ástæða fyrir bólgunni. Líkaminn berst gegn einhverju,“ segir hún. Paul McCartney, fyrrum eiginmaður hennar og barnsfaðir, hafi grínast með það að sennilega hafi það gerst vegna þess að hún hafi verið grænkeri í langan tíma. Hetaher vill ekki ræða fyrrverandi eiginmann sinn eftir erfiðan skilnað þeirra hjóna. Hún segir þó McCartney vera grænmetisætu en ekki grænkera vegna þess að hann hafi ekki viljastyrkinn sem þurfi til. „Maður þarf styrk til þess að hætta að borða ost, mjólk og egg,“ segir hún.
Ísland í dag Heilsa Matur Mest lesið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Fleiri fréttir Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Sjá meira