„Hundgamall“ klefafélagi Tómasar spilar á HM Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. júní 2026 09:01 Craig Gordon er elsti leikmaður HM. getty Skotland spilar sinn fyrsta leik á HM síðan 1998 í kvöld þegar liðið mætir Haítí. Þar mun elsti leikmaður mótsins, og klefafélagi Tómasar Bent Magnússonar, koma við sögu.
Tómas er leikmaður Hearts í Skotlandi og fékk stemninguna beint í æð þegar Skotar tryggðu sig inn á HM í umspilinu í mars. „Það var frábær stemning þegar þeir tryggðu sig inn, í umspilinu gegn Danmörku. Alls staðar verið að tala um þetta og mjög skemmtilegt að vera þarna. Það héldu allir með Skotlandi í klefanum hjá okkur, Englendingarnir líka. Ég held með Skotlandi í sumar allavega,“ sagði Tómas. Skotland dróst í nokkuð erfiðan riðil, með Marokkó, Brasilíu og Haítí en Tómas hefur mikla trú á sínum mönnum. „Já, þeir taka Haítí og halda hreinu í fyrsta leik. Svo þurfa þeir að kreista fram úrslit gegn annað hvort Marokkó eða Brasilíu. [Lawrence] Shankland skorar örugglega slatta,“ sagði Tómas og bar engar slæmar tilfinningar til fyrrum fyrirliða Hearts sem fór til Rangers eftir tímabilið. Annar liðsfélagi Tómasar hjá Hearts á síðasta tímabili er í skoska landsliðshópnum, markmaðurinn Craig Gordon, sem er jafnframt elsti leikmaður mótsins, 43 ára gamall. „Þetta er toppmaður. Hundgamall sko og galið að hann sé enn í þessu. En alveg frábær náungi innan sem utan vallar. Rosalegur markmaður, þrátt fyrir öll þessi meiðsli sem hann hefur gengið í gegnum. Það verður gaman að fylgjast með honum og vonandi fær hann að spila eitthvað.“ Svona reynslubolti hlýtur að eiga góðar bransasögur? „Ég sit við hliðina á honum í klefanum og það er mikil viska sem kemur þaðan. Hann á góðar sögur af hinum og þessum mönnum. Eins og þegar hann var í Sunderland, með Roy Keane og félögum, en við förum ekkert nánar út í það,“ sagði Tómas hlæjandi.
Skoski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Grípa í taumana eftir banaslys Enski boltinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Fótbolti Fleiri fréttir Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Uppgjörið: Valur-Víkingur 1-0 | Fyrsti sigur Vals síðan 25. maí „Var bara eitthvað með hann ógeðslega lengi og svo bara skoraði ég“ Sjá meira