Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar 12. júní 2026 08:31 Ég er ekki bundinn einum flokki fram yfir annan, en það er ekkert launungarmál að alla jafna kýs ég til vinstri. Það hefur ekki reynst mér vel. Lengst af unnu hægriflokkarnir kosningar þrátt fyrir allar mínar kúnstir í kjörklefanum en upp á síðkastið hafa atkvæðin mín hins vegar hjálpað til við að koma til valda flokkum sem segjast aðhyllast félagshyggju en virðast gleyma hvað orðið þýðir um leið og lyklaskipti hafa orðið. Hvað er það sem gerist þegar maður sest við skrifborð forsætisráðherra í Stjórnarráðinu? Hvers vegna gufar mannúðin upp og allar stóru hugmyndirnar um sanngjarnara þjóðskipulag? Við sáum þetta gerast hjá Katrínu Jakobsdóttur og nú endurtekur leikurinn sig hjá Kristrúnu Frostadóttur og það er grátlegt að fylgjast með því. Ég kýs til vinstri því mér hugnast ekki stefnumál íhaldsflokkanna. Þar sker ég mig ekki úr kjósendahópnum: Við kjósum félagshyggju því við viljum félagshyggju. Flatkaka með hangikjöti Íslendingar búa sannarlega við hátt hlutfall innflytjenda. Hlutfallið hefur hækkað hratt og því fylgja áskoranir. Um sjötíu prósent innflytjenda eru hins vegar hér á grundvelli EES-samningsins. Nafnlausu Miðflokkströllin á netinu vilja auðvitað senda þetta fólk heim - en vilja þau, eins og varaformaðurinn viðraði um daginn, segja þeim samningi upp? Átta þau sig á því hvað það myndi þýða fyrir Ísland? Drögum svo frá úkraínska flóttamenn og eftir standa fimmtán þúsund hræður sem Sigmundur Davíð vill kenna um allt sem hér hefur farið aflaga síðustu áratugi. Fyrir hvert þeirra fáum við 150 ferðamenn til landsins árlega. Hvort ætli valdi meira álagi á okkar annars ágætu kerfi? Ef það býr agnarögn af vitrænni gagnrýni í málflutningi Miðflokksins í innflytjendamálum þá grafa þingmenn hans og kjósendur í sífellu undan henni með hatursfullum málflutningi sem byggir ekki á staðreyndum heldur ranghugmyndum um fólk sem fæddist ekki maulandi á flatköku með hangikjöti. Af hverju rembist Samfylkingin við að nálgast þessi rasísku tíu til fimmtán prósent en sýnir fólkinu sem kaus það sannarlega til valda fingurinn? Halda þau í alvöru að rugludallarnir greiði þeim þá atkvæði sitt í næstu kosningum? Hvernig væri að læra af mistökum jafnaðarmanna vítt og breitt um Evrópu í stað þess að grafa eigin gröf? Ábyrgð í útlendingamálum „Ábyrgð í útlendingamálum“ snýst ekki um að opna fangelsi eða draga úr réttindum fólks á flótta vegna þess að stofnunin sem fjallar um málefni þeirra er ófær um að vinna vinnuna sína á eðlilegum hraða. Raunveruleg ábyrgð í útlendingamálum snýst um að breyta ferlum þannig að aðkomnir fái úrlausn sinna mála á nokkrum vikum eða mánuðum (ekki árum), að stórauka - margfalda - fjármagn til íslenskukennslu og inngildingar, gera fólki kleift að vinna fyrir sér meðan það bíður, og mæta endurteknum lygum Miðflokksmanna og annarra útlendingahatara með staðreyndum og fordæma alla rasíska orðræðu. Sú orðræða hefur þegar ollið skelfilegum skaða eins og allir sem eru dökkir á hörund eða tala með hreim eða eiga eftir að læra íslensku geta vitnað um. Það er eitthvað virkilega mikið að þegar svokölluð félagshyggjustjórn tekur frá 500 milljónir árlega í rekstrarkostnað brottvísunarstöðvar á meðan hún lækkar framlög til íslenskukennslu í 350 milljónir. Hvort ætli gagnist þjóðfélaginu betur? Hvort ætli stuðli að „breiðri sátt í útlendingamálum“? Þótt ráðherrar og þingmenn Samfylkingar sjái það ekki (lengur) þá er það augljóst fyrir langflesta sem greiddu þeim atkvæði sitt. Höfundur er m.a. meðlimur í Samfylkingunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Atli Bollason Mest lesið Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju segi ég nei í lok ágúst? Steingrímur J. Sigfússon skrifar Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin er heimskur, síljúgandi siðblindingi Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar