Körfubolti

Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álfta­nes

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Serbneski körfuboltamaðurinn Luka Gasic færir sig á milli félaga í Garðabæ og spilar með Álftanesi á næstu leiktíð.
Serbneski körfuboltamaðurinn Luka Gasic færir sig á milli félaga í Garðabæ og spilar með Álftanesi á næstu leiktíð. Vísir/Diego

Álftnesingar hafa fengið flottan liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Bónusdeild karla í körfubolta.

Serbneski körfuboltamaðurinn Luka Gasic hefur gengið til liðs við Álftanes og mun spila með liðinu á komandi leiktíð.

Luka þarf vart að kynna fyrir íslensku körfuboltaáhugafólki en hann spilaði fyrir Stjörnuna á nýafstöðnu tímabili.

Gasic átti frábært tímabil og skilaði 19,8 stigum í leik, 6,5 fráköstum og 3,1 stoðsendingu að meðaltali í leik. Í úrslitakeppninni var hann með 17,6 stig, 6,1 frákast og 2,6 stoðsendingar að meðaltali í leik.

Þar áður lék Gasic í efstu deildum Slóvakíu og Serbíu við góðan orðstír. Luka býr þannig yfir mikilli reynslu frá Evrópu ásamt því að þekkja íslenskan körfubolta og umhverfið hérlendis afar vel.

„Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Luka á Álftanes. Luka er gríðarlega fjölhæfur leikmaður og jafnframt einn allra skilvirkasti leikmaður deildarinnar. Hann kemur með gæði og reynslu inn í hópinn sem mun nýtast okkur vel í baráttunni sem fram undan er,” sagði Baldur Þór Ragnarsson, nýr þjálfari Álftaness og fyrrum þjálfari Stjörnunnar.

Baldur tók því með sér eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×