NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 10. júní 2026 21:20 Nicki Rayl aðstoðarforstjóri sóleðlisfræðideildar NASA ræddi við fréttastofu um verkefnið. Bandaríska geimferðastofnunin NASA mun standa í stórræðum hér á landi í ágúst þegar sólmyrkvinn stendur sem hæst. Flugvélar og loftbelgir koma við sögu.
Þegar klukkan mun nálgast sex að kvöldi þann 12. ágúst næstkomandi mun athygli flestra á Íslandi beinast að almyrkvanum, sem er sá fyrsti sem er sjáanlegur hér á landi síðan þann 30. júní 1954 og næsti verður svo ekki sjáanlegur fyrr en árið 2196. Teymi vísindamanna frá Bandaríkjunum á vegum geimferðastofnunarinnar NASA mun hinsvegar beina sjónum sínum að himinhvolfinu yfir Íslandi, þeir eru nú staddir á landinu til að undirbúa aðgerðirnar, sem verða viðamiklar. „Við ætlum að fljúga flugvélum frá Keflavíkurflugvelli til að elta þennan skugga, til að ná myndum af sólarkórónunni eða ytra lofthjúpi sólarinnar sem við sjáum aðeins þegar tunglið hylur sólina. Við munum einnig senda upp loftbelgi til að rannsaka lofthjúpinn fyrir ofan og sjá hvernig hann bregst við skyndilegu myrkri,“ segir Kelly Korrick vísindamaður NASA. Þannig mun NASA fljúga sérstökum flugvélum sínum af gerðinni WB-57 með fullkomnum mælabúnaði yfir Ísland. En hvers vegna í ósköpunum að standa í þessu? „Sólin hefur áhrif á okkur hvað varðar geimveður, þannig að fallegu norðurljósin sem við sjáum svo oft á Íslandi eru af völdum geimveðurs, stöðugs útstreymis agna og orku frá sólinni. Það hefur áhrif á jörðina og á okkur hér, svo við þurfum að læra um það. Við þurfum líka að læra hvernig það mun hafa áhrif á okkur á tunglinu og Mars þegar við höldum lengra.“ Og Nicki Rayl aðstoðarforstjóri sóleðlisfræðideildar NASA segir hverja einustu mínútu þann 12. ágúst skipta máli. „Þegar sólmyrkvi verður er það eina skiptið sem við getum í raun séð kórónu sólar, eða ytra lofthjúp hennar, svo við getum séð orkuna þegar hún fer frá sólinni og heldur áfram til jarðar og lengra. Þetta er því lykiltími þar sem við getum gert rannsóknir sem eru aðeins mögulegar á meðan á myrkvanum stendur og það hjálpar til við að auka þekkingu okkar á sólinni og hvernig hún hefur samskipti við restina af vetrarbrautinni okkar, þessa sérstöku stjörnu okkar.“ Og NASA hefur átt í góðu samstarfi við Íslendinga vegna rannsóknarinnar, sem markar þáttaskil í geimrannsóknum á Íslandi að sögn framkvæmdastjóra Íslensku geimferðarstofnunarinnar. „Þetta er mikilvægt fyrir börnin hér, þetta er mikilvægt fyrir vísindafólkið hér og þetta er mikilvægt með tilliti til þeirra tækifæra sem verða til staðar eftir að sólmyrkvanum lýkur.“
Geimurinn Sólin Almyrkvi 12. ágúst 2026 Bandaríkin Mest lesið Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Sjá meira