Körfubolti

Wembanyama sleppur við refsingu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það er mikil barátta í kringum Victor Wembanyama en hér hann í baráttu við Karl-Anthony Towns í liði New York Knicks.
Það er mikil barátta í kringum Victor Wembanyama en hér hann í baráttu við Karl-Anthony Towns í liði New York Knicks. Getty/ Al Bello

Stjörnuleikmaður San Antonio Spurs, Victor Wembanyama, fær ekki óíþróttmannslega villu eftir á þrátt fyrir að hrinda Jalen Brunson, leikstjórnanda Knicks, í þriðja leik lokaúrslita NBA.

Wembanyama verður því áfram með tvö stig fyrir grófar villur í úrslitakeppninni. Leikmenn sem ná fjórum stigum fyrir grófar villur fá sjálfkrafa eins leiks bann.

Atvikið átti sér stað þegar tæpar fimm mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta í leiknum á mánudag.

Brunson reyndi að setja hindrun á hinn 2,24 metra háa Wembanyama nálægt vítalínunni og þegar miðherjinn sneri sér við hrinti hann leikstjórnanda Knicks í gólfið. Engin villa var dæmd í leiknum þrátt fyrir tafarlaus mótmæli frá New York.

Monty McCutchen, aðstoðarforstjóri dómaramála og þjálfunar hjá NBA, sagði í þættinum „NBA Today“ á ESPN fyrr á þriðjudag að dæma hefði átt villu í atvikinu. Deildin ákvað hins vegar að uppfæra ekki atvikið í grófa villu.

Wembanyama fékk tvö stig fyrir grófa villu fyrr í úrslitakeppninni eftir að hafa gefið Naz Reid, framherja Minnesota Timberwolves, olnbogaskot í kjálkann í fjórða leik í annarri umferð.

Stjarna Spurs fékk þá grófa villu af stigi tvö fyrir of harkalega snertingu fyrir ofan háls, sem leiddi til brottvísunar. Hann fékk enga frekari refsingu, þar með talda sekt.

Næsti leikur, sá fjórði í úrslitaeinvíginu, fer fram í New York í kvöld en þar reynir Spurs að jafna metin en Knicks-liðið kemst í 3-1 með sigri.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×