Körfubolti

Steinar á­fram hjá Ár­manni

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Oddur Birnir og Steinar Kaldal hafa stýrt Ármanni síðustu þrjú ár.
Oddur Birnir og Steinar Kaldal hafa stýrt Ármanni síðustu þrjú ár.

Steinar Kaldal verður áfram aðalþjálfari Ármanns í Bónus deild karla í körfubolta á næsta tímabili. Aðstoðarþjálfarinn Oddur Birnir Pétursson skrifaði einnig undir framlengdan samning.

Ármenningar tilkynntu á samfélagsmiðlum að Steinar og Oddur yrðu áfram við stjórnvölinn en þeir hafa stýrt liðinu síðustu þrjú tímabil.

Fyrir rúmu ári síðan stýrðu þeir Ármanni upp í úrvalsdeildina á nýjan leik og nýliðunum tókst að halda sínu sæti eftir æsispennu í lokaumferðum Bónus deildarinnar.

Verið er að smíða leikmannahóp fyrir næsta tímabil. Nú þegar hefur verið tilkynnt að Ingvi Þór Guðmundsson verði áfram hjá félaginu en talið er að bróðir hans, Bragi Guðmundsson, sé á förum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×