Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Lovísa Arnardóttir skrifar 10. júní 2026 07:50 Grindavík er opin og einhverjir hafa flutt aftur heim. Vísir/Vilhelm Járngerður, hagsmunasamtök íbúa um framtíð og endurreisn Grindavíkur, skorar á forsætisráðherra, ríkisstjórn og þingmenn að leysa úr búsetumálum Grindvíkinga fyrir sumarfrí þingsins. Fasteignafélagið Þórkatla tilkynnti íbúum í síðustu viku sem eru með hollvinasamning að frá og með haustinu yrðu gistiheimildir þeirra takmarkaðar og íbúar þyrftu að tilkynna hvenær þeir gista.
Í tilkynningu frá Járngerði segir að þessi ákvörðun hafi þegar sett áform fjölskyldna sem áætluðu að flytja aftur til Grindavíkur í uppnám og að einhverjar þeirra hafi þegar gefist upp. Bæjarstjórn hefur tilkynnt að skólahald eigi að hefjast aftur í haust og hefur það vakið umræðu meðal fjölda Grindvíkinga um að flytja aftur heim. Saka stjórnvöld um að tefja Nýkjörin bæjarstjórn Grindavíkur sakar stjórnvöld um að beita Þórkötlu vísvitandi fyrir sig til að tefja endurreisn Grindavíkur og koma í veg fyrir að fjölskyldur geti snúið heim. Í tilkynningu frá bæjarstjórn fyrir helgi kom fram að hún hefði fundað með Þórkötlu og að það væri ekki félagið sem stæði í vegi fyrir því að íbúar flyttu heim heldur stjórnvöld. „Ný bæjarstjórn Grindavíkur krefst þess að ríkisstjórnin stígi fram úr skugga Þórkötlu og tali skýrt við heimamenn. Grindavíkurbær er tilbúinn til samstarfs um raunhæfar lausnir og krefst þess að heimkoma þeirra Grindvíkinga sem hennar óska verði ekki tafin að óþörfu.“ Síðasta eldgos á Sundhnúksgígaröðinni var fyrir tæpu ári, um miðjan júlí. Í tilkynningu frá Veðurstofunni í gær kom fram að landris og kvikusöfnun haldi áfram undir Svartsengi með stöðugum hraða að mati Veðurstofu. Hættumat helst óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni. Samkvæmt hættumati er hætta í Grindavík metin nokkur eða töluverð á, til dæmis, jarðfalli ofan í sprungu, jarðskjálftum, sprunguhreyfingum, gosopnun og gasmengun. „Grindvíkingar geta ekki beðið eftir því að stjórnvöld taki ákvarðanir byggðar á nýju áhættumati sem stendur til að birta í júlí. Stjórnvöld þurfa að taka ákvörðun núna óháð þessu áhættumati. Við bendum á að Grindavík er öllum opin og búseta er þar heimil svo fremi sem Almannavarnir loki ekki bænum eða rými hann af völdum aðsteðjandi hættu. Við skorum á forsætisráðherra, ríkisstjórn og þingmenn að leysa úr þessu máli áður en Alþingi fer í sumarfrí,“ segir í áskorun Járngerðar.
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir „Ávallt komið skýrt fram“ að ekki sé um að ræða fasta búsetu Framkvæmdastjóri Þórkötlu segir hollvinasamninga Grindvíkinga við félagið aldrei verið hugsað til fastrar búsetu og að það hafi ávallt komið skýrt fram. Breyting á ákvæðum samninga sé tilraun til að gera það skýrara. 4. júní 2026 12:38 Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Fasteignafélagið Þórkatla vinnur nú að uppfærslu hollvinasamninga og gistiviðauka þeirra sem gerir ráð fyrir að frá og með 1. september geti hollvinir ekki gist fleiri en tólf nætur á mánuði í eignunum. Bæjarfulltrúi er ósáttur en bæjarstjórn fundar með stjórn Þórkötlu á morgun. 2. júní 2026 21:29 Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Fleiri fréttir Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Sjá meira
„Ávallt komið skýrt fram“ að ekki sé um að ræða fasta búsetu Framkvæmdastjóri Þórkötlu segir hollvinasamninga Grindvíkinga við félagið aldrei verið hugsað til fastrar búsetu og að það hafi ávallt komið skýrt fram. Breyting á ákvæðum samninga sé tilraun til að gera það skýrara. 4. júní 2026 12:38
Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Fasteignafélagið Þórkatla vinnur nú að uppfærslu hollvinasamninga og gistiviðauka þeirra sem gerir ráð fyrir að frá og með 1. september geti hollvinir ekki gist fleiri en tólf nætur á mánuði í eignunum. Bæjarfulltrúi er ósáttur en bæjarstjórn fundar með stjórn Þórkötlu á morgun. 2. júní 2026 21:29