Körfubolti

Elvar og fé­lagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elvar Már Friðriksson og félagar í La Laguna Tenerife þurfa að gleyma þessum leik í kvöld sem fyrst.
Elvar Már Friðriksson og félagar í La Laguna Tenerife þurfa að gleyma þessum leik í kvöld sem fyrst. Getty/Javier Borrego

Elvar Már Friðriksson og félagar í La Laguna Tenerife fengu stóran skell í fyrsta leiknum í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Barcelona í kvöld.

Barcelona vann á lokum 33 stiga sigur, 100-67, eftir að hafa verið 46-27 yfir í hálfleik.

Barcelona er því 1-0 yfir í einvíginu en vinna þarf þrjá leiki til þess að komast í úrslitaeinvígið.

Tenerife-liðið kom mikið á óvart með því að slá út deildarmeistara Real Madrid í átta liða úrslitum en liðið vann þá tvo útileiki í Madrid.

Börsungar pössuðu upp á að slíkt endurtæki sig ekki í kvöld. Þeir unnu fyrsta leikhlutann 19-11 og voru með nítján stiga forskot í hálfleik.

Elvar spilaði í rúmar þrettán mínútur, náði ekki að skora en gaf þrjár stoðsendingar á félaga sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×