Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Áróra L Davíðsdóttir skrifar 9. júní 2026 10:36 18.300 einstaklingar, eða 5,1%, skiluðu ekki framtali. Vísir Almennur tekjuskattur nam 282 milljörðum króna og fjármagnstekjuskattur 65 milljörðum króna á síðasta ári. Samtals nam tekjuskattur til ríkissjóðs 346 milljörðum og 417 milljarðar króna runnu í útsvar til sveitarfélaga. Hlutfall tekjuskatts til ríkissjóðs var 45,4% á móti 54,6% sem rann til sveitarfélaga.
Framteljendur í álagningu voru 359.948 og fjölgaði um 5.800 á milli ára. Framteljendur með erlent ríkisfang eru tæplega fjórðungur allra í álagningu. Þetta kemur fram í samantekt fjármála- og efnahagsráðuneytisins á vef Stjórnarráðsins þar sem tekið er mið af tekjum einstaklinga árið 2025 og eignastöðu þeirra 31. desember 2025. Tekjuskatts- og útsvarsstofn landsmanna hækkaði um 8,4% frá fyrra tekjuári og nam 2.653 milljörðum króna árið 2025. Laun og hlunnindi hækkuðu um 149 milljarða króna eða 7,4%, greiðslur úr lífeyrissjóðum um 36,2 milljarða króna eða 11,8% og frá Tryggingastofnun um 24,1 milljarð króna sem samsvarar 12,3% hækkun. Atvinnuleysisbætur hækkuðu um 20,2% á milli ára og námu útgreiðslur 30 milljörðum króna. 18.300 einstaklingar, eða 5,1%, skiluðu ekki framtali og fengu þeir áætlaðan tekjuskattstofn upp á 112 milljarða króna að meðtöldu álagi. Það er 4,2% af tekjuskatts- og útsvarsstofni, áþekkt við árið á undan, segir í samantektinni. Fækkar um 1.700 manns í efsta skattþrepi Rúmur helmingur þeirra sem fékk álagðan tekjuskatt greiddi tekjuskatt í fyrsta þrepi eða 53,3%. Um 41,9% greiddu tekjuskatt einungis í öðru þrepinu og 4,8% í efsta þrepinu. Hópurinn sem greiddi tekjuskatt í efsta þrepi taldi ríflega 16 þúsund manns og fækkaði um 1.700 milli ára. Einstaklingur sem var með einhvern tekjuskattsstofn á aldrinum 25 til 67 ára var að meðaltali með 791.600 krónur í mánaðartekjur. Í efra fjórðungsmarki var tekjuskattsstofn einstaklinga 973.900 krónur á mánuði og í neðra fjórðungsmarki var hann 487.300 krónur á mánuði.
Skattar, tollar og gjöld Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira