Íslenskir bændur berskjaldaðir í boði RÚV Heiðbrá Ólafsdóttir skrifar 9. júní 2026 10:01 Það hefur ekki farið framhjá neinum hversu óvægin og ósanngjörn umfjöllun Ríkisútvarpsins um starfsemi íslenskra bænda hefur verið síðastliðin ár. Umfjöllun sem hefur aðallega byggst á illa fengnum heimildum úr innbrotum í húsnæði bænda og ólöglegum myndbandsupptökum, sem óprúttnir einstaklingar hafa stundað og skýlt sér á bakvið dýravelferð. Ævistarf og mannorð íslenskra bænda hefurverið vegið, metið og dæmt af dómstóli götunnar sem hefur nær eingöngu byggt sinn dóm á einhliða umfjöllun Ríkisútvarpsins nánast án aðkomu bænda þrátt fyrir að bændur hafi ítrekað boðið fjölmiðlum að koma og kynna sér starfsemina og framkvæmdina sem þar hefur átt í hlut. Það hefur meira segja verið gengið svo langt í allri fjölmiðlaumræðunni að húsnæði og híbýli bænda hefur verið auglýst sem ákjósanlegt til innbrots sem hefur leitt til síendurtekinna innbrota í húsnæði bænda, nýlegustu dæmin eru innbrot í svínabú og hæsnabú með þeim afleiðingum að aflífa þurfti fjölmörg dýr, allt saman í nafni dýravelferðar. Þessi staða er grafalvarleg og skilur bændur eftir berskjaldaða á sínum búum. Vegferð Ríkisútvarpsins, að leiða bændur landsins hvern af öðrum í Kveiks-gapastokkinn að manni virðist, varð kveikja að neðangreindri fyrirspurn undirritaðrar til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra enda veldur þessi vegferð óhug hjá bændum sem spyrja sig: hverjir eru næstir? Sauðfjárbændur í sauðburði? Kúabændur? Því ef markmiðið er það að finna svarta sauðinn í hverri búgrein og dæma heila stétt fyrir gjörðir hans þá þarf ekki að spyrja að leikslokum hjá íslenskum bændum. Fyrirspurnin var svohljóðandi: Hefur ráðherra skoðað hvort birting RÚV á myndefni sem fengið er með ólögmætum hætti, t.d. með innbroti í húsnæði, samræmist þeim lagalegu og siðferðilegu kröfum sem gerðar eru til RÚV? Svarið sem barst var efnislega rétt og vísaði fyrst og fremst til þess að Ríkissjónvarpið er sjálfstætt og óháð í störfum sínum. En einnig var vísað í siðareglur og vinnureglur Ríkissjónvarpsins sem kveða á um að starfsfólki sé skylt að rækja störf sín af ábyrgð, heilindum og heiðarleika. Einnig kemur þar fram að starfsmönnum er óheimilt að kasta rýrð á Ríkissjónvarpið eða skaða ímynd þess eða traust með framkomu sinni. Því verður ekki haldið fram að ofangreind fjölmiðlaumfjöllun hafi verið unnin af heilindum og heiðarleika. Og þessir starfshættir eru búnir að skaða ímynd og grafa undan trausti landsmanna til Ríkisútvarpsins Ríkisútvarpið hefur í ofanálag ekki gert neitt með tilboð þeirra sem þekkja málið um að svara þessari óvægnu umfjöllun. Það var því afar ánægjulegt að heyra Stefán Jón Hafstein, stjórnarformann Ríkisútvarpsins, í viðtali á Bylgjunni síðdegis fimmtudaginn 5. júní, taka undir áhyggjur og sjónarmið undirritaðrar. Með hans orðum og skilaboðum er von um að starfsmennRíkissjónvarpsins hugsi sig tvisvar sinnum um, vonandi þó þrisvar sinnum, áður en þeir ákveða að byggja fjölmiðlaumfjöllun á myndefni sem er fengið með ólöglegum og illum hætti sem fer bersýnilega gegn siðareglum og vinnureglum Ríkisútvarpsinsallra landsmanna. Höfundur er bóndi og varaþingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ríkisútvarpið Miðflokkurinn Landbúnaður Mest lesið Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar