Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir skrifar 9. júní 2026 08:32 Í stjórnarfrumvarpi atvinnuvegaráðherra til laga um lagareldi er gert ráð fyrir að Hafrannsóknastofnun geti falið þriðja aðila að annast það sem er kallað vöktun og hreinsun eldislaxa í ám og það án samþykkis landeigenda og veiðiréttarhafa. Þeir þriðju aðilar sem atvinnuvegaráðherra vill með lögum skylda bændur til að taka á móti eru í reynd verktakar á vegum sjókvíaeldisfyrirtækjanna með milligöngu Hafrannsóknastofnunar. Með öðrum orðum, þetta eru norsku froskkafararnir með spjótbyssurnar sem hafa tvisvar heimsótt landið til að reyna að hreinsa úr ám eldislaxa sem sjókvíaeldisfyrirtækin hafa misst frá sér. Sérhagsmunagæsla fyrir norsk kauphallarfyrirtæki Þetta er nýtt ákvæði sem er ekki í núgildandi lögum um fiskeldi og þjónar engu nema sérhagsmunum þeirra fjögurra sjókvíaeldisfyrirtækja sem starfa hér á landi. Ef þetta ákvæði atvinnuvegaráðherra verður að lögum munu íslensku bændurnir sem eiga laxveiðiárnar ekkert ákvörðunarvald hafa um mögulegt hreinsunarstarf í þeim. Verktakar á vegum norsku kauphallarfyrirtækjanna (sjókvíaeldisfyrirtækin eru skráð í Osló), sem skapa áhættuna, fá hins vegar frjálsar hendur og för í boði ríkisvaldsins til að ganga inn á landareignir bændanna og standa þar að verki einsog þeim sýnist. Ákvörðunarvaldið er þannig fært frá eigendum jarðanna og veiðiréttindanna til þeirra sem bera ábyrgð á menguninni. Ótrúlegt en satt, en svona vill atvinnuvegaráðherra Viðreisnar hafa þetta og ríkisstjórnin öll að því er virðist. Stjórnarskrárvörðum réttindum fórnað fyrir hagsmuni eldisrisa Veiðiréttindi eru stjórnarskrárvarin eignarréttindi. Neyðaraðgerðir á skipulögðum veiðisvæðum valda verulegri rekstrarröskun, tekjutapi og ímyndarskaða. Í lagareldisfrumvarpi atvinnuvegaráðherra er hvergi hugað að því hver á að greiða fyrir þetta gríðarlega tjón, sem getur eftir atvikum verið tímabundið eða jafnvel varanlegt og þar með óbætanlegt. Samkvæmt frumvarpinu eiga þessar sömu eftir á og meintu hreinsunaraðgerðir að verða hluti af þeim forsendum sem byggt er á við mat á leyfilegu eldismagni í sjókvíaeldi. Með þessu er ekki aðeins verið að leggja byrðar á landeigendur og veiðiréttarhafa vegna vandamáls sem verður til í annarri atvinnustarfsemi heldur á bókstaflega að nýta þessar íþyngjandi og að mestu marklausu aðgerðir sem röksemd fyrir auknu eldismagni hjá þeim sömu og skapa áhættuna! Norskir froskkafarar að störfum í Langadalsá haustið 2023. Fyrir veiðiréttarhafa og tengda ferðaþjónustu er þetta ekki fræðilegt álitaefni. Aðgerðir af þessu tagi munu hafa veruleg áhrif á upplifun veiðimanna, orðspor viðkomandi ár, rekstur veiðihúsa og þar með verðmæti þeirra réttinda sem áin byggir á. Áhrifin takmarkast þó ekki við einstakar ár. Villtir laxastofnar eru hluti af ímynd Íslands sem lands hreinnar náttúru og einstaks veiðiumhverfis. Ef laxveiðiár landsins verða reglulega vettvangur neyðaraðgerða vegna sleppinga úr sjókvíaeldi mun það eyðileggja orðspori Íslands sem eins fremsta áfangastaðar heims fyrir stangveiði. Ef þetta væri Bláa lónið Til að setja málið í samhengi má hugsa sér að við hlið Bláa lónsins væri starfrækt eituefnaverksmiðja sem reglulega ylli því að eitraður leki bærist í lónið. Í stað þess að megináherslan væri lögð á að koma í veg fyrir lekann, myndu stjórnvöld heimila tvöföldun á starfsemi eituefnaverksmiðjunnar með þeim rökum að hægt væri að bregðast við afleiðingunum eftir á með hreinsunaraðgerðum. Jafnframt yrði fært í lög að ekkert samráð þyrfti að hafa við eigendur Bláa lónsins, heldur mætti senda verktaka á vegum eiturefnaverksmiðjunnar hvenær sem er á svæðið. Þeir gætu þó ekki tryggt að öll mengunin yrði fjarlægð. Þvert á móti væru mestar líkur á að stór hluti hennar yrði eftir. Þar sem engar raunverulegar kröfur væru gerðar til eituefnaverksmiðjunnar til að stöðva upptök vandans, væri nú búið að margfalda áhættuna fyrir Bláa lónið. Afbóka þyrfti ferðir, tekjur féllu niður og virði fyrirtækisins myndi hrynja – allt vegna vandamáls sem eigendur og rekstraraðilar Bláa lónsins bera enga ábyrgð á. Þrátt fyrir augljóst, fyrirsjáanlegt og verulegt tjón, sem gæti á endanum leitt til varanlegrar lokunar lónsins, væri hvergi tekið á þeirri rekstraróvissu í lögum sem ríkið hefði sett til að greiða götu eiturefnaverksmiðjunnar. Flestum þætti nálgun sem þessi fráleit. Samt er það í meginatriðum sama hugsun og birtist í 7. grein lagareldisfrumvarps atvinnuvegaráðherra. Orðspor getur horfið á augabragði Tjónið af völdum sjókvíaeldis á laxi takmarkast langt í frá eingöngu við það sem hægt er að mæla í krónum og aurum. Þegar náttúruperla, sem byggir verðmæti sín á orðspori Íslands sem lands ósnortinnar náttúru, er tengd við mengun, lokanir og neyðaraðgerðir, hefur það áhrif langt út fyrir rekstur viðkomandi staðar. Það tekur skamman tíma að skaða orðspor en mörg ár að byggja það upp á ný. Ábyrgðin á áhættunni á alltaf að fylgja starfseminni sem skapar hana. Áherslan á að vera á að koma í veg fyrir að fiskur sleppi úr eldinu – ekki á að færa afleiðingar þess yfir á landeigendur og veiðiréttarhafa, og nota svo þær byrðar sem afsláttarmiða fyrir aukið sjókvíaeldi. Auðvitað eiga þessi fyrirtæki að tryggja sjálf sínar mótvægisaðgerðir og umfram allt að eldislaxarnir sleppi ekki úr sjókvíum. Ef þau rísa ekki undir þeirri ábyrgð þá er þessari atvinnugrein „sjálfhætt“ svo vitnað sé í orð Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um haustið 2023. Það væri stórslys ef lagareldisfrumvarp atvinnuvegaráðherra yrði óbreytt að lögum. Höfundur er lögfræðingur og umhverfisverndarsinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjókvíaeldi Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar