Fótbolti

Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af

Valur Páll Eiríksson skrifar
Eriksen virðist vera í lagi eftir þetta hræðilega atvik.
Eriksen virðist vera í lagi eftir þetta hræðilega atvik. Ulrik Pedersen/NurPhoto via Getty Images

Christian Eriksen, leikmaður danska landsliðsins, féll til jarðar í leik Dana við Úkraínu í Óðinsvéum í Danmörku seinni partinn í dag. Leikurinn hefur verið stopp í um tíu mínútur þegar fréttin er skrifuð.

Eriksen féll til jarðar þegar rúmlega 65 mínútur voru liðnar af leiknum. Leikmenn og starfsfólk, auka neyðaraðila voru fljótt kallaðir til og hlúðu að honum.

Sjónvarpsmyndavélar sýndu ekki hvað gerðist á vellinum en danskir miðlar greina frá því að Eriksen hafi staðið upp og gengið sjálfur af velli eftir að hlúð hafði verið að honum í um tíu mínútur.

Um er að ræða annað skiptið sem Eriksen hnígur til jarðar vegna hjartaáfalls. Það gerðist í leik Danmerkur og Finnlands á Parken á EM sumarið 2021. Eriksen lést þá á vellinum en var endurlífgaður.

Í kjölfarið var hann utan fótboltavallarsins um nokkurra mánaða skeið og græddur var í hann bjargráður. Bjargráðurinn virðist hafa sinnt sínu hlutverki í dag og endurræst hjarta Danans.

Leikurinn var flautaður af eftir atvikið.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×