Handbolti

Guð­jón Valur þjálfari ársins í Þýska­landi

Sindri Sverrisson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson hefur náð mögnuðum árangri með Gummersbach.
Guðjón Valur Sigurðsson hefur náð mögnuðum árangri með Gummersbach. Getty/Ronny Hartmann

Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummersbach, hefur verið valinn þjálfari ársins í sterkustu landsdeild heims í handbolta, þeirri þýsku.

Það eru þjálfarar og stjórnendur í deildinni sem koma að kosningunni og hefur Guðjón Valur nú verið heiðraður fyrir hreint út sagt magnað tímabil með sínu liði.

Lokaumferðin í deildinni er um helgina en ljóst er að Gummersbach endar í 4. sæti, fyrir ofan lið á borð við Kiel, Lemgo, Evrópudeildarmeistara Melsungen og Rhein-Neckar Löwen. Liðið endar skammt á eftir Flensburg og Füchse Berlín en Magdeburg hafði yfirburði í deildinni og hefur aðeins tapað einum leik á tímabilinu.

Guðjón Valur tók við Gummersbach árið 2020, þegar það var í næstefstu deild, og hóf þetta gamla stórveldi upp í efstu deild og nú í hóp fjögurra bestu liða Þýskalands. Ljóst er að liðið leikur í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.

Forráðamenn Gummersbach hafa verið hvattir til að gera sem fyrst nýjan samning við Guðjón Val, í ljósi þess að evrópsk stórlið hljóti nú að vera með hann í sigtinu, en sjálfur kveðst þessi fyrrverandi landsliðsfyrirliði Íslands pollrólegur yfir stöðunni.

Hjá Gummersbach er Guðjón Valur með tvo íslenska lærisveina, þá Elliða Snæ Vignisson og Teit Örn Einarsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×