„Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Hólmfríður Gísladóttir skrifar 5. júní 2026 10:18 Efnt var til mótmæla í Southampton vegna framgöngu lögreglu. AP/Gareth Fuller Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna birti færslu á X í gær þar sem skotið er á stjórnvöld á Bretlandseyjum vegna máls Henry Nowak, sem var handjárnaður af lögreglu þar sem hann lá á jörðinni og blæddi út. „
Hugmyndafræðileg skilyrðing og tveggja þrepa löggæsla eru augljós einkenni menningarlegrar hnignunar,“ segir í færslunni. Þeim verði Vesturlönd að hafna. Þá sendir ráðuneytið fjölskyldu Nowak og bresku þjóðinni samúðarkveðjur. Umvöndun Bandaríkjamanna kemur á hæla gangrýni Elon Musk og Nigel Farage, leiðtoga Reform, sem báðir hafa sakað lögreglu um fordóma gegn hvítum. Nowak, sem var hvítur, var stunginn til bana af síkanum Vickrum Digwa. Morðinginn og fjölskylda hans lugu því að lögreglu að Digwa orðið fyrir kynþáttafullri árás af hálfu Nowak. Lögregla tók þau á orðinu og hunsaði Nowak þegar hann sagðist hafa verið stunginn. Eins og fyrr segir var hann þess í stað tafarlaust settur í járn. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sakaði Musk í gær um að freista þess að stuðla að sundrung meðal Breta. Þá sagði aðstoðarforsætisráðherrann David Lammy í morgun að hann væri ánægður með samúðarkveðjur Bandaríkjamanna en að hann kannaðist ekki við þá lýsingu að allir væru ekki jafnir fyrir lögunum á Bretlandseyjum. Rannsókn stendur yfir á framgöngu lögreglu í málinu.
Bretland Bandaríkin Mest lesið Annar árekstur á sama vegkafla með klukkustundar millibili Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Fleiri fréttir Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan Sjá meira