Týndur í sex daga en komst einn niður af Everest Samúel Karl Ólason skrifar 4. júní 2026 10:17 Það þykir kraftaverki líkast að Dawa Sherpa hafi skilað sér til grunnbúða Everest, sex dögum eftir að hann týndist í um 7.500 metra hæð. AP/NIranjan Shrestha Reynslumikill nepalskur leiðsögumaður sem týndist á Everest í síðustu viku fannst á lífi í morgun. Dawa Sherpa tókst að lifa af eftir að hafa týnst í um 7.500 metra hæð fyrir sex dögum og er hann sagður hafa skriðið aftur til grunnbúðanna við fjallið.
Þyrluflugmenn voru sendir til að leita að honum en leitin skilaði ekki árangri. Í frétt BBC segir að hreinsunarteymi hafi séð Dawa nærri grunnbúðunum í morgun og að hann hafi verið fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Ótrúlegt þykir að hann hafi lifað af en hann mun vera við ágætis heilsu, heilt yfir. Rúmlega þúsund manns komust á tind Everest á þessu tímabili, sem er það mesta sem vitað er um. Fimm dóu á tímabilinu, þar af þrír menn frá Nepal sem komu að því að undirbúa tímabilið. Dawa, sem er 52 ára gamall, hvarf þann 29. maí þegar hann var að fylgja hópi niður frá Búðum 4, sem eru hæstu búðirnar á fjallinu. Þá var hann að fylgja breskum og pólskum mönnum niður fjallið og dróst aftur úr. Breski maðurinn birti í gær myndband þar sem hann sagðist viss um að Dawa væri látinn og rifjaði upp hvernig hann hefði sest niður til að hvíla sig. Chis Thrall, breski maðurinn, segist hafa spurt Dawa hvernig hann hefði það og mun hann hafa svarað á þá leið að hann væri góður og sagt Thrall að halda áfram. Við það fór Thrall að aðstoða pólska manninn, sem var í basli, en Dawa náði þeim aldrei aftur. Í samtali við BBC segir Pemba Sherpa, sem stýrði leitinni að Dawa, að hann viti ekki til þess að nokkur maður hafi lifað af að týnast svo hátt á fjallinu áður. „Það er kraftaverk að hann hafi lifað af einn í sex daga og komist niður af fjallinu.“ Áður en hann fannst á lífi var Damu Sherpa, eiginkona Dawa, búin að segja við fjölmiðla að hún teldi hann látinn. Í samtali við AP fréttaveituna segist hún fyrst hafa heyrt af því að eiginmaður hennar væri á lífi í fjölmiðlum.
Nepal Everest Mest lesið Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Dagný Ósk látin Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Innlent Fleiri fréttir Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Sjá meira