Hjóluðu á HM frá Argentínu til Bandaríkjanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júní 2026 13:32 Vinirnir þrír hjóluðu meira en sextán þúsund kílómetra leið. FOX4 News Kansas City Meðal stuðningsmanna argentínska fótboltalandsliðsins á heimsmeistaramótinu í ár verða þrír aðdáendur liðsins sem hafa sjálfir unnið mikið íþróttaafrek.
Þrír stuðningsmenn liðsins eru miklir hjólagarpar og í stað þess að fljúga alla þessa leið frá Argentínu til Bandaríkjanna ákváðu þeir að fara hana á hjóli. Hjólreiðamennirnir luku á þriðjudag ferð sinni frá Gualeguaychu í Argentínu til Kansas City, en þeir lögðu af stað í ágúst síðastliðnum. Frá því að ferð þeirra hófst síðasta sumar hafa Vicente Conculini, Miguel Silio og Yamundu Martinez ferðast yfir sextán þúsund kílómetra í gegnum sautján lönd til að komast í búðir argentínska liðsins fyrir heimsmeistaramótið. Auk þess að hjóla alla þessa leið þurftu vinirnir að vera með allt með sér allt frá vetrarbúnaði yfir í sumarbúnað. View this post on Instagram A post shared by Men in Blazers (@meninblazers) Silio átti erfitt með að finna orð til að lýsa augnablikinu í viðtali við bandarísku sjónvarpsstöðina KSHB. „Ferðalagið er erfitt. Maður upplifir kulda, hita og rigningu. Og að finna þessi laun að lokum, satt best að segja, þá gerir það allt þess virði – hvert einasta augnablik,“ sagði Miguel Silio í viðtali á móðurmáli sínu, spænsku. Á síðustu kílómetrunum bættust tugir íbúa Kansas City í hópinn með þremenningunum. Steven Seck, sem býr á Kansas City-svæðinu, sagðist hafa viljað vera hluti af augnablikinu. „Við vildum vera lítill hluti af einhverju miklu, miklu stærra en við öll,“ sagði Seck. Á síðustu kílómetrunum hugleiddu hjólreiðamennirnir allt sem þeir höfðu gengið í gegnum. „Þetta er draumur,“ sagði Martínez. Conculini sagðist ekki einu sinni hafa haft tíma til að hugsa – og að það myndi líða nokkur tími áður en hann gæti meðtekið að fullu hvað hefði gerst. „Það eru engin orð til að lýsa því,“ sagði hann. Endamark þeirra var hótelið þar sem argentínska landsliðið dvelur í Kansas City. Silio kallaði augnablikið mjög sérstakt. Hjólreiðamennirnir þrír ætla að vera í Kansas City þar til eftir að argentínska landsliðið spilar í borginni þann 16. júní, þótt þeir séu ekki með miða á leikinn. Næstu tvær nætur gista þeir á hóteli á staðnum og hafa ekki enn ákveðið hvert þeir halda næst. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=7Iu294KyoKA">watch on YouTube</a>
HM 2026 í fótbolta Argentína Mest lesið Kristján hafði betur gegn Fjallinu og er sterkasti maður Íslands Sport Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Höfuðhöggin á ferlinum valdi vitglöpum Sport Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Dagskráin í dag: Mansfield og Messa á sunnudegi Sport Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Aston Villa hyggst fylla í götin Enski boltinn Fleiri fréttir Betur fór en á horfðist fyrir leik Íslendingaliðsins Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Sjá meira