Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júní 2026 07:32 Wyland stendur hér fyrir framan veggmyndina sína en nú hefur verið málað yfir hana vegna heimsmeistaramótsins. Getty/Leonard Ortiz/ Listamaður hefur lögsótt Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, en hann heldur því fram að sambandið og samstarfsaðilar þess hafi málað yfir þekkta veggmynd í miðborg Dallas án samþykkis hans vegna heimsmeistaramótsins í fótbolta.
Umhverfislistamaðurinn Wyland höfðaði mál fyrir alríkisdómstóli í Texas eftir að vinnuflokkar máluðu yfir átta hæða veggmyndina með blárri málningu í síðasta mánuði. Wyland vill fá 25 milljónir Bandaríkjadala í bætur eða meira en þrjá milljarða í íslenskum krónum. Í málsskjölunum kom fram að þann 18. maí hefði verið búið að mála yfir stærstan hluta veggmyndarinnar. MARINE ARTIST ROBERT WYLAND SUES FIFA OVER DESTRUCTION OF ICONIC DALLAS MURALWyland filed suit seeking at least $25 million, alleging the 1999 “Ocean Life” mural at 505 N. Akard St. was painted over without his consent to make way for World Cup promotions.… pic.twitter.com/zm7E1Srraw— The Dallas Express News (@DallasExpress) June 2, 2026 Skipulagsnefnd heimsmeistaramóts FIFA í Norður-Texas sagði í yfirlýsingu til staðarmiðils í maí að veggmyndinni yrði skipt út fyrir nýtt listaverk til að „fagna og byggja upp spennu fyrir komandi heimsmeistaramót 2026“. Wyland lögsótti FIFA auk fyrirtækjanna sem eiga og reka bygginguna þar sem veggmyndin er. „Dallas og Wyland áttu betra skilið,“ sagði í málsskjölunum og bætt var við að eyðilegging listaverksins væri persónulegur harmleikur fyrir listamanninn og nærsamfélagið. Wyland málaði veggmyndina, sem kallast „Ocean life“ eða Whaling Wall 82, árið 1999 sem hluta af hundrað verka röð til að vekja athygli á hafmengun. Hún sýndi sjávarmynd með iðandi sjávarlífi, sem í málsskjölunum var sögð vera „borgaralegt kennileiti“ í borginni. Wal-Gemälde zerstört – Künstler verklagt Fifa auf 25 Millionen Dollar Schadensersatz https://t.co/0SGPvWT2FK pic.twitter.com/QZ8slFZWlc— WELT (@welt) June 3, 2026 Í málsskjölunum héldu lögmenn Wylands því fram að eyðilegging listaverksins bryti í bága við alríkislög sem vernda viðurkennd verk listamanna gegn eyðileggingu nema listamaðurinn skrifi undir skriflega afsalsyfirlýsingu þar sem leyfi er veitt. Wyland skrifaði ekki undir slíka yfirlýsingu, samkvæmt skjölunum. „Listamenn færa borgum okkar fegurð, sjálfsmynd og efnahagslegt gildi. Réttindi þeirra eiga skilið sömu vernd og við veitum öllum hornsteinum borgaralegs lífs,“ sagði einn af lögmönnum Wylands, Andrea Perez, meðeigandi hjá Carrington Coleman. Eyðilegging veggmyndarinnar í síðasta mánuði olli mikilli reiði hjá listamanninum, íbúum Dallas og þekktum einstaklingum eins og söngkonunni Kacey Musgraves sem fædd er í Texas. „Við sjúgum sálina úr öllu,“ er Musgraves sögð hafa skrifað á Instagram um fjarlægingu veggmyndarinnar. Þann 15. maí, þegar verið var að mála yfir veggmyndina, birti Wyland færslu á Instagram þar sem hann sagði að FIFA hefði eyðilagt eina af „fallegustu og þekktustu veggmyndunum“ sínum. Artist sues FIFA for $25 million after iconic Dallas whale mural was painted over for World Cup pic.twitter.com/HhjLQKkALu— Dallas Texas TV (@DallasTexasTV) June 2, 2026
HM 2026 í fótbolta FIFA Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Eriksen yfirgefur Wolfsburg Fótbolti Fleiri fréttir George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Sjá meira