Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. júní 2026 12:39 Rúnar mætti með stæl á þingið. Rúnar Sigurjónsson, vélvirki og formaður Fornbílaklúbbsins, tók sæti á Alþingi sem varaþingmaður Flokks fólksins í gær. Verandi mikill fornbílakarl mætti Rúnar á vínrauðum, 95 ára gömlum Chevrolet Independence.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, fór nýverið í leyfi frá störfum og tók því Rúnar Sigurjónsson, fyrsti varaþingmaður Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, sæti á þinginu. „Það var fallegur dagur í morgun þegar ég var að leggja af stað niður á Alþingi, en ég er um þessar mundir sitjandi varaþingmaður. Mér fannst því skemmtileg tilbreyting að rúlla bara niður í þinghús á Gamla - Chevrolet og leggja honum í bílageymslu þingsins, sem klárlega vakti kátínu meðal annara þingmanna og starfsfólks þingsins,“ skrifaði Rúnar í færslu á Facebook í gærmorgun. Kagginn er ansi flottur. „Það er mér til efs að svo gamalt ökutæki hafi verið nýtt sem „embættisbifreið“ þingmanns áður, en sá gamli fagnaði nýlega 95 ára aldri, smíðaður í Kansas City í Bandaríkjunum snemma á árinu 1931,“ skrifaði hann jafnframt. Rúnar hefur verið í Flokki fólksins í þó nokkurn tíma. Hann var í fimmta sæti á lista flokksins í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningum bæði 2022 og 2026 og var í þriðja sæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í Alþingiskosningunum 2024 á eftir Ingu Sæland og Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur. Þá skipaði Inga Sæland hann sem varamnn í stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Alþingi Flokkur fólksins Bílar Mest lesið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira