Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Birgir Olgeirsson skrifar 2. júní 2026 09:55 Samninganefnd Icelandair í húsakynnum ríkissáttasemjara í Borgartúni. Vísir/Vilhelm Ekki hefur enn verið boðað til fundar í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Síðasti fundur var á föstudag. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir þó samtöl í gangi milli deiluaðila um áframhaldandi viðræður. Ef tækist að koma á fundi yrði hann mögulega haldinn þegar líður á vikuna.
Vísir greindi frá því í gær að Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefði lagt til svokallaða fleytilausn í deilunni. Hefði hún orðið fyrir valinu yrðu gerðir skammtímasamningar til að skapa starfsfrið yfir sumarvertíð Icelandair. Með skammtímasamningnum yrðu stór deiluefni lögð til hliðar. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari.Vísir/Vilhelm Stóru málin sem styr hefur staðið um varða fyrirætlanir Icelandair um kaup á 49% hlut í félaginu Play Europe sem er með flugrekstrarleyfi á Möltu. Þar stendur deilan á því hversu stór hluti af rekstri Icelandair fer þar undir og hvort notast verði við stéttarfélagsbundna flugmenn. Annað stórt atriði sem deilt er um er vinnuframlag flugmanna sem jókst um 22% við undirritun kjarasamninga árið 2020 og var liður í endurreisn félagsins. Nýting fór úr 525 flugtímum á ári í 640 flugtíma á ári en flugmenn vilja meina að sú nýting hafi aukist á samningstímanum. Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Þá er einnig deilt um að Icelandair fái auknar heimildir til að stunda svokallaða blautleigu, þar sem félagið myndi leigja flugvél ásamt áhöfn af öðru flugfélagi til að sinna áætlunarflugi fyrir Icelandair. Heimild er til þess innan kjarasamninga í undantekningartilvikum í dag. Icelandair hefur aflýst tuttugu áætlunarferðum síðasta mánuðinn vegna mönnunarvanda, sem fyrirtækið rekur til samstilltra aðgerða flugmanna sem felast í því að þeir neiti að selja frídaga, sem hafi síðast gerst árið 2014 þegar flugmenn áttu í kjaradeilu við félagið. Flugmenn hafna því og segja ábyrgðina alfarið á herðum Icelandair sem ætli að láta flugáætlun félagsins standa og falla með kaupum á frídögum flugmanna. Þrátt fyrir aflýsingarnar komust um 98 prósent ferða Icelandair á áfangastað í maí samanborið við 99 prósent í maí í fyrra. Stundvísi félagsins var um 80 prósent í mánuðinum, samanborið við 84 prósent á sama tíma í fyrra.
Icelandair Kjaramál Flug Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira