Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Valur Páll Eiríksson skrifar 2. júní 2026 12:02 Queiroz valdi Partey í HM-hópinn. Samsett/Getty Carlos Queiroz, þjálfari landsliðs Gana, kemur Thomas Partey, fyrrverandi miðjumanni Arsenal til varna. Partey er á leið með ganíska liðinu á HM þrátt fyrir að átta ákærur um kynferðisbrot hangi yfir honum.
Partey lék lengi vel með Arsenal en er í dag miðjumaður Villarreal á Spáni. Hann á að hafa framið meint brot milli 2020 og 2022, þegar hann lék með enska liðinu. Fyrir dómstólum í Bretlandi liggja sjö ákæruliðir um nauðgun og einn ákæruliður um kynferðisbrot á hendur Partey. Meint brot beinast gegn þremur konum. Partey neitar sök í öllum málunum átta en dómshald á að fara fram í nóvember á þessu ári, þó það kunni að frestast til næsta árs. Partey er í 26 manna leikmannahópi Gana sem heldur á HM síðar í mánuðinum. Hann er hluti af ganíska liðinu sem á að spila æfingaleik við Wales í Cardiff í dag. Það verður fyrsti leikur hans í Bretlandi eftir að hann var boðaður fyrir dómara í september á síðasta ári vegna ákæranna. Portúgalinn Queiroz, sem var um tíma aðstoðarþjálfari Sir Alex Ferguson hjá Manchester United, var spurður út í Partey á blaðamannafundi ganíska liðsins í Cardiff í gær. „Það er einfalt svar við þessu. Eftir mínu viti er það þannig á Englandi, í Portúgal, eða hvar sem er annarsstaðar í heiminum að þar til dómstólar komast að niðurstöðu er viðkomandi saklaus uns sekt er sönnuð,“ segir Queiroz. „En það er svoleiðis í dag, og það snertir ekki aðeins Thomas, þá er hegðunin þannig á samfélagsmiðlum og stundum hjá fjölmiðlum að fólk er dæmt áður en það fær tækifæri til að verja sig.“ Queiroz tók við landsliði Gana í apríl síðastliðnum í aðdraganda HM. Hinn 73 ára gamli Queiroz fer á fimmta heimsmeistaramótið í röð sem þjálfari. Hann stýrði Portúgal á HM 2010, Íran á mótunum 2014, 2018 og 2022 og nú Gana á komandi móti. Gana mætir Wales í síðasta æfingaleik liðsins fyrir HM í dag. Ganamenn spila sinn fyrsta leik á HM við Panama þann 17. júní og er auk þess með Englandi og Króatíu í sterkum L-riðli mótsins. Leikur Wales og Gana verður sýndur beint á Sýn Sport Viaplay klukkan 18:35 í kvöld. Á undan því, klukkan 15:50, má sjá leik Króatíu og Belgíu í beinni á Sýn Sport Viaplay. Landsliðshópur Gana á HM: Markmenn: Benjamin Asare (Accra Hearts of Oak SC), Lawrence Ati-Zigi (St Gallen), Joseph Anang (St Patrick's Athletic), Solomon Agbasi (Accra Hearts of Oak SC), Paul Reverson (Ajax) Varnarmenn: Baba Abdul Rahman (PAOK), Gideon Mensah (Auxerre), Marvin Senaya (Auxerre), Alidu Seidu (Rennes), Abdul Mumin (Rayo Vallecano), Jerome Opoku (Istanbul Basaksehir), Jonas Adjetey (Wolfsburg), Kojo Oppong Peprah (Nice), Alexander Djiku (Spartak Moscow), Elisha Owusu (Auxerre) Miðjumenn: Thomas Partey (Villarreal), Kwasi Sibo (Real Oviedo), Augustine Boakye (Saint-Etienne), Caleb Yirenkyi (Nordsjaelland), Abdul Fatawu Issahaku (Leicester City) Sóknarmenn: Kamaldeen Sulemana (Atalanta), Christopher Bonsu Baah (Al Qadsiah), Ernest Nuamah (Lyon), Antoine Semenyo (Manchester City), Brandon Thomas-Asante (Coventry City), Prince Kwabena Adu (Viktoria Plzen), Iñaki Williams (Athletic Bilbao), Jordan Ayew (Leicester City)
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ Fótbolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Fótbolti „Það sem hræðir mann er það sem er mest þess virði að gera“ Sport Sýning Svía og Diallo hetja Fílanna Fótbolti „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ Fótbolti Féll á lyfjaprófi við að reyna að verða ólétt Sport Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Ég ætla að halda mig til hlés“ Fótbolti „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Fótbolti Fleiri fréttir Landsliðsfyrirliðinn á leið í safaríferð til Tansaníu „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Sýning Svía og Diallo hetja Fílanna „Ég ætla að halda mig til hlés“ Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Tryggði Japan jafntefli með því að skalla boltann af höfði liðsfélaga og inn „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu „Smá þolinmæði sem þarf“ Real Madrid keypti Cucurella af Chelsea Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Japanir mættir til að vinna heimsmeistaramótið, ekki til að skemmta sér Leikmenn Portúgal bera Diogo Jota-armbönd á HM Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Ísak Bergmann trúlofaður Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Sjá meira