Mótmæltu flutningi á ebólusmituðum Bandaríkjamönnum til Kenía Samúel Karl Ólason skrifar 1. júní 2026 13:00 Lögregluþjónar stóðu vörð við herstöðina. AP/Andrew Kasuku Hundruð ungmenna mótmæltu fyrir utan bandaríska herstöð í bænum Nanyuki í morgun. Þar hafa Bandaríkjamenn sett upp einangrunarmiðstöð fyrir bandaríska ríkisborgara sem eru smitaðir af ebólu eða gætu hafa smitast. Hæstiréttur Keníu komst nýverið að þeirri niðurstöðu að miðstöðin mætti ekki vera þar í landi.
Fjölmiðlar vestanhafs sögðu frá því í síðustu viku að bandarískir ríkisborgarar sem smitast af ebólu eða gætu hafa smitast verði ekki fluttir heim. Þess í stað eigi að senda þá í einangrun á Laikipia-herstöðinni í Kenía. Í kjölfarið höfðuðu tvenn samtök í Kenía mál gegn Bandaríkjamönnum á þeim grunni að ekki ætti að hýsa sýkt fólk þar í landi. Forsvarsmenn samtakanna vísuðu meðal annars til þess að heilbrigðiskerfi Kenía hefði ekki burði til að bregðast við faraldri. Fjöldi fólks tók þátt í mótmælunum í morgun.AP/Andrew Kasuku AP fréttaveitan segir hundruð ungmenna hafa gengið að herstöðinni í morgun en þar mótmæltu þau einangrunarstöðinni. Ríkisstjóri héraðsins og aðrir embættismenn af svæðinu hafa einnig mótmælt því að verið sé að senda fólk með ebólu til herstöðvarinnar. Þar vinni mikið af heimafólki og að veiran gæti breiðst út. Aden Duale, heilbrigðisráðherra Kenía, sagði í gær að miðstöðin væri ekki eingöngu fyrir Bandaríkjamenn heldur fyrir alla. Þá sagði Marco Rubio, utanríkisráðherra, að ríkisstjórn Bandaríkjanna ætlaði að styrkja Kenía um 13,5 milljónir dala sem verja ætti í forvarnir gegn ebólu. Ebólu-faraldurinn í Afríku er að mestu bundinn við Austur-Kongó, þar sem að minnsta kosti 282 hafa smitast, svo vitað sé. Níu staðfest tilfelli hafa greinst í Úganda, sem er nágrannaríki bæði Austur-Kongó og Kenía, þar sem engin tilfelli hafa greinst. Þrjár mismunandi veirur valda ebólu og dreifast þær manna á milli með líkamsvessum. Ebóla getur valdið miklum blæðingum og dauða. Engin lækning er til gegn ebólu en helmingur þeirra sem smitast deyr, samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, en það hefur verið mismunandi milli faraldra. Mótmælendur dreifðu miðum sem þessum þar sem yfirvöld í Kenía eru harðlega gagnrýnd.AP/Andrew Kasuku Til er bóluefni gegn einungis einni af veirunum sem valda ebólu. Þessi faraldur er vegna dreifingar Bundibugyo-veirunnar en ekkert bóluefni er til við henni, né meðferðarúrræði. Hún er sú sjaldgæfasta af veirunum þremur sem valda ebólu og hefur einungis tvisvar sinnum áður verið í dreifingu, svo vitað sé. Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, varaði nýverið við því að dreifing veirunnar hefði greinst seint og að öryggisástand á svæðinu þar sem hún er í dreifingu væri verulega slæmt. Heimamenn hafa verið mjög tortryggnir í garð heilbrigðisstarfsmanna og hefur verið ráðist á meðferðarstöðvar og jafnvel kveikt í þeim.
Kenía Bandaríkin Austur-Kongó Úganda Ebóla Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira