Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Smári Jökull Jónsson skrifar 1. júní 2026 07:39 Skjálftahrina stendur yfir á Hellisheiði. Vísir/Vilhelm Á fimmta hundrað jarðskjálftar hafa mælst í jarðskjálftahrinu á Hellisheiði sem hófst í gærmorgun. Að sögn náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofunni eru engin merki um að eitthvað sé að draga úr hrinunni en stærsti skjálfinn sem mælst hefur var 3,3 að stærð.
Hrinan hófst um klukkan sjö í gærmorgun og að sögn Elísabetar Pálmadóttur, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofunni, er fjöldi skjálfta að nálgast 450. Hún segir að engin merki sjáist um að draga sé úr hrinunni. „Við þurfum að fylgjast með áfram í dag og sjá hvernig þetta þróast. Flestir skjálftarnir eru um eða undir einn á stærð en stærsti skjálfinn var 3,3 rétt eftir klukkan fimm í gær og hann hannst vel á höfuðborgarsvæðinu og í Hveragerði,“ sagði Elísabet í samtali við fréttastofu nú í morgun. Skjálftahrinur á þessu svæði við Hengil eru þekktar og Elísabet segir hrinuna ekki óeðlilega. „Við þurfum að skoða nánar í dag hvort það sé einhver önnur ástæða fyrir þeim, en þetta höfum við alveg séð áður,“ segir Elísabet og bætir við að meðal annars verði skoðað í dag hvort hrinan tengist niðurdælingu vatns nærri Hellisheiðarvirkjun. „Við munum skoða það betur í dag með þeim. Þetta er ekki óvenjulegt í raun og veru miðað við staðsetningu, stærð og fjölda.“
Eldgos og jarðhræringar Hveragerði Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hafa borið kennsl á hinn látna Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Innlent Fleiri fréttir Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Leita karlmanns á sjötugsaldri Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Sjá meira