Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2026 10:33 Rakel Grétarsdóttir skoraði tvö mörk í sigrinum á HK um helgina. @krreykjavik1899 KR-konur voru í miklum ham í Lengjudeild kvenna í fótbolta í Vesturbænum um helgina og enginn lék betur í 6-0 sigri KR-liðsins á HK-konum en hin sextán ára Rakel Grétarsdóttir.
Rakel skoraði tvívegis í leiknum en hin mörkin skoruðu systurnar Kara og Katla Guðmundsdætur og svo þær Emma Björt Arnarsdóttir og Makayla Soll. Seinna mark Rakelar í leiknum var afar laglegt og myndband samfélagsmiðlaljósmyndara KR gerði það síðan enn skemmtilegra. Rakel lék þarna laglega á varnarmann HK þegar hún keyrði inn í teiginn en svo góð var ein gabbhreyfing hennar að hún plataði myndatökumanninn líka upp úr skónum. Hann missti sjónar á bæði Rakel og boltanum en náði síðan að átta sig rétt áður en hún smellti knettinum í markið. View this post on Instagram A post shared by Livey (@livey.events) Hér fyrir ofan má sjá myndbandið af öðru marki Rakelar sem var tekið fyrir aftan markið. Öll mörk liðsins, þar á meðal umrætt mark frá öðru sjónarhorni, má sjá hér fyrir neðan. KR-konur hafa unnið alla þrjá heimaleiki sína og skorað í þeim þrettán mörk. Þær eru í öðru sæti með tólf stig í húsi af fimmtán mögulegum. Rakel hefur skorað fjögur mörk og er markahæst í KR-liðinu í Lengjudeildinni í sumar. View this post on Instagram A post shared by KR Reykjavík FC (@krreykjavik1899)
Lengjudeild kvenna KR HK Mest lesið Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Sport Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Handbolti Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Íslenski boltinn Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Fótbolti Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Fótbolti Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Enski boltinn Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ Enski boltinn Hefur 39 sinnum skipt um lið á ferlinum Fótbolti Ráðherrann segir að Spánn eigi meira skilið en Marokkó að fá úrslitaleik HM Fótbolti Uppgjörið: Thun - Víkingur 3-0 | Töturlegt í Thun Fótbolti Fleiri fréttir Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Uppgjörið: Stjarnan - Þróttur 1-1 | Sanngjarnt jafntefli Óskar Smári: „Óþolandi að vinna ekki heima“ Tveir erlendir leikmenn yfirgefa Keflavík Ekki sammála Lárusi þá og ekki núna: „Þetta er bara heimskulegt“ Líkti frammistöðu KA við tíma sinn í Mjólkursamsölunni Tekur skóna af hillunni til að hjálpa Þrótti Sjáðu kveðjumark Kjartans Kára fyrir FH og Keflavík klára KA á níu mínútum „Leik eftir leik mæta þeir til leiks með núll ákefð, núll hjarta og ekkert hungur“ Kjartan Kári á leiðinni í Víking Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið „Það er skellur“ Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ „Það er erfitt að eiga við okkur“ Uppgjörið: Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Grótta sótti þrjú stig á Ísafjörð og vandræði Vestra halda áfram Heldur brasið áfram á Brazell í Bestu deildinni? Dómararnir ástæðan fyrir því að ÍA vann ekki „Fæ einhverja skepnu á blindu hliðina“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin á Skaganum Uppgjörið: ÍA - Víkingur 2-2 | Tvö rauð og bæði ósátt heim Sjá meira