HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2026 09:01 Andreas Brehme (til vinstri) og Lothar Matthäus fagna saman með heimsbikarinn í leikslok. Getty/Sven Simon Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir tíu daga. Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta og í dag minnumst við þess þegar Vestur-Þjóðverjar unnu sinn þriðja og síðasta heimsmeistaratitil undir nafni Vestur-Þýskalands. Hetja liðsins kom þá úr óvæntri átt.
Heimsmeistaramótið á Ítalíu fyrir 36 árum var án efa mót Lothar Matthäus, fyrirliða vesturþýska landsliðsins. Hann fór á kostum á HM 1990 og skoraði fjögur mörk af miðjunni í fyrstu fimm leikjum mótsins. Andreas Brehme Goal 85' | West Germany vs Argentina | 1990 FIFA World Cup Italy Andreas Brehme: 1990 World Cup. Andreas Brehme’s performance in the 1990 World Cup remains one of the greatest individual campaigns by a defender in tournament history. Notably ambidextrous, he pic.twitter.com/iMDh2lHXNj— Retro Calcio (@retro_calcio) March 18, 2026 Matthäus skoraði meðal annars af miklu öryggi eina markið úr vítaspyrnu gegn Tékkóslóvakíu í átta liða úrslitum. En þegar Vestur-Þýskaland fékk aðra vítaspyrnu, þegar 85 mínútur voru liðnar af markalausum úrslitaleik þeirra á móti Argentínu, steig aftur á móti fram bakvörðurinn Andreas Brehme. „Ég braut sólann í skónum mínum í fyrri hálfleik,“ útskýrði Matthäus seinna í samtali við heimasíðu FIFA. „Ég átti enga aukaskó, svo ég varð að nota eina aukaparið sem búningastjórinn átti. Þeir pössuðu ekki almennilega og mér líkaði hvort eð er betur við notaða skó,“ sagði Matthäus. „Þegar við fengum vítaspyrnuna sagði ég Andi að taka hana. Við höfðum aðra möguleika, framúrskarandi vítaskyttur, en Andi var herbergisfélagi minn og ég vissi að hann væri rétti maðurinn,“ sagði Matthäus. Þeir þekktust afar vel því auk þess að spila saman í landsliðinu í sex ár voru þeir samherjar hjá Bayern München þar til þeir færðu sig á sama tíma yfir til Internazionale á Ítalíu sumarið 1988. German football legends Andreas Brehme and Lothar Matthaus with the World Cup trophy, 1990. pic.twitter.com/Z6Z6QQvREr— The Extreme Football Enthusiast (@ExtremeFootbal4) May 6, 2026 Brehme, sem hafði skorað úr vítaspyrnu með vinstri fæti í vítaspyrnukeppninni gegn Mexíkó í átta liða úrslitum 1986, skoraði eina markið með hægri fæti og tryggði Vestur-Þýskalandi bikarinn. Hann er enn eini leikmaðurinn í sögu heimsmeistaramótsins sem hefur skorað úr vítaspyrnum á HM með bæði hægri og vinstri fæti. Það er athyglisvert að gegn Júgóslavíu fyrr á mótinu á Ítalíu varð Matthäus eini leikmaðurinn sem hefur skorað utan teigs í leik á heimsmeistaramóti bæði með hægri og vinstri fæti.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Dagskráin í dag: Mansfield og Messa á sunnudegi Sport Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Fleiri fréttir Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Uppgjörið: Valur-Víkingur 1-0 | Fyrsti sigur Vals síðan 25. maí Sjá meira