Gerði óþekktan leikmann heimsfrægan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2026 08:02 Tim Payne hefur fengið næstum því fjórar milljónir af nýjum fylgjendum á síðustu dögum. Fyrir nokkrum dögum var hann aðeins með fjögur þúsund fylgjendur. Getty/Hagen Hopkins Nýsjálenskur leikmaður á HM í fótbolta hefur öðlast frægð á samfélagsmiðlum eftir að áhrifavaldur í fótbolta vakti athygli á honum.
Heimsmeistaramótið í fótbolta er fram undan en 48 lið með 26 manna hópa þýða að 1248 leikmenn mæta á heimsmeistaramótið. Það liggur í augum uppi að í hópi þeirra eru margir lítt þekktir leikmenn. Argentínski áhrifavaldurinn El Scarso vildi breyta því. Hann vildi finna út hver væri minnst þekkti leikmaður mótsins og í framhaldinu breyta því snarlega. Það er óhætt að segja að það hafi tekist. Nýsjálenski varnarmaðurinn Tim Payne er óvænt orðinn að fótboltastjörnu eftir að áhrifavaldur frá Argentínu hvatti fylgjendur sína til að sameinast og gera hinn lítt þekkta 32 ára Payne að „hetju“ komandi heimsmeistaramóts. El Scarso, áhrifavaldur í fótbolta, einnig þekktur sem Valen Scarsini, benti á Payne sem minnst þekkta leikmanninn á HM í Kanada, Bandaríkjunum og Mexíkó, miðað við fáa fylgjendur hans á samfélagsmiðlum. Þúsund nýir fylgjendur á mínútu Payne var með um 4.700 fylgjendur á Instagram fyrr í vikunni. Eftir að El Scarso vakti athygli á honum hefur sú tala hækkað um næstum þúsund fylgjendur á mínútu og var komin yfir þrjár milljónir um helgina. Fylgjendahópur Payne er nú mörgum sinnum stærri en hjá fyrirliða Nýja-Sjálands og þekktasta leikmanni liðsins, Chris Wood, framherja Nottingham Forest. „Það eru aðeins nokkrir dagar þar til HM hefst og við bíðum öll spennt eftir að hvetja landsliðið okkar, en hvað ef það væri leikmaður sem sameinaði okkur öll, fótboltamaður sem við styðjum öll óháð þjóðerni?“ sagði Scarsini. It all started when digital creator and football influencer Valen Scarsini decided to find what he called the World Cup’s “least-known footballer.”His intention was to “find a player that united us all… regardless of nationality.”That led him to Tim Payne. pic.twitter.com/buqnOY71q2— The Athletic (@TheAthletic) May 29, 2026 „Ég leitaði í öllum landsliðunum sem keppa á HM að þeim minnst þekkta og eftir að hafa skoðað þau eitt af öðru fann ég hann. Í G-riðli, hjá Nýja-Sjálandi, er Tim Payne. Hann er í raun sá minnst þekkti. Hann er ekki einu sinni með 5.000 fylgjendur,“ sagði El Scarso. Scarsini, sem hefur yfir 900 þúsund fylgjendur, hvatti fylgjendur sína til að „byrja að minnast á Tim Payne alls staðar“. Ýta undir goðsögnina Tim Payne „Við verðum að byrja að gera myndbönd til að ýta undir goðsögnina um Tim Payne. Ef þú átt HM-límmiðaalbúmið, settu þá inn mynd með límmiðanum hans. Markmiðið er að sjá hversu margir þekkja Tim Payne áður en HM hefst,“ sagði El Scarso. Payne brást við nýfenginni frægð sinni á samfélagsmiðlum á föstudag. Tim Payne on an unreal past few days 🐐🇳🇿 pic.twitter.com/e5GJYLj4MT— New Zealand Football 🇳🇿 (@NZ_Football) May 29, 2026 „Ég var að velta fyrir mér af hverju allt var að springa á samfélagsmiðlunum mínum og fann svo færsluna þína, maður,“ sagði hann. „Ég kann að meta stuðninginn! Gracias, hermano.“ „Ég vil bara þakka þér kærlega fyrir, Valen. Þetta hafa verið ansi klikkaðir 48 tímar, svo ekki sé meira sagt. Ég vildi líka koma því á framfæri að ég er mjög þakklátur fyrir að fá að vera fulltrúi lands míns og ég kann að meta allan stuðninginn frá öllum heimshornum,“ sagði Payne. Nýja-Sjáland keppir á HM í þriðja sinn eftir að hafa komist áfram árin 1982 og 2010. Liðið á enn eftir að vinna leik. Liðið er í G-riðli með Belgíu, Íran og Egyptalandi. Nýja-Sjáland hefur leik á mótinu gegn Íran þann 15. júní í Los Angeles. View this post on Instagram A post shared by 433 (@433)
HM 2026 í fótbolta Nýja-Sjáland Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Eriksen yfirgefur Wolfsburg Fótbolti Fleiri fréttir Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og boðað til fleiri breytinga Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Arsenal náði sigurmarki gegn Emelíu í uppbótartíma Svekkjandi jafntefli hjá Glódísi Perlu og Cecilía Rán hélt hreinu í Íslendingaslag Sjá meira