Viðskipti innlent

Sam­þykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum fé­lögum fyrir milljarða

Smári Jökull Jónsson skrifar
Tilkynnt var um kauptilboð Brims á Lýsi í september en nú hefur stjórn félagsins samþykkt kaupin.
Tilkynnt var um kauptilboð Brims á Lýsi í september en nú hefur stjórn félagsins samþykkt kaupin. Vísir/Vilhelm

Stjórn Brims hf. hefur samþykkt að kaupa öll hlutabréf í Lýsi hf.. Kaupverðið er 20 milljarðar króna sem er minna en kauptilboð Brims sem tilkynnt var um í september. Þá hefur Brim jafnframt tilkynnt um sölu á hlutum sínum í tveimur fyrirtækjum.

Í september var tilkynnt um kauptilboð Brims á Lýsi fyrir þrjátíu milljarða með fyrirvara um samþykki stjórna félaganna, hluthafafundar Brims og Samkeppniseftirlitsins. Frá kaupverðinu þá áttu að dragast 5,3 milljarðar sem voru vaxtaberandi skuldir Lýsis og hlutafjárvirði fyrirtækisins í viðskiptunum því um 24,7 milljarðar króna.

Í gær var síðan greint frá því á heimasíðu Brims að stjórn félagsins hafi samþykkt kaup á öllum hlutabréfum í Lýsi fyrir tuttugu milljarða. Sagt er að endursamið hafi verið um verð og greiðslukjör í viðskiptunum sem meðal annars taki tillit til vaxtaberandi skulda. 

Heildarkaupverðið greiðist til helminga með reiðufé og til helminga með hlutabréfum í Brim þar sem miðað er við gengið 85 krónur á hvern hlut og verður greitt að fullu þegar viðskiptin verða frágengin að fengnu samþykki opinberra aðila.

Seljendur Lýsis eignast með viðskiptunum um 6% af heildarhlutafé Brims.

Þá er jafnframt greint frá sölu Brims á hlutum sínum í tveimur öðrum félögum. Annars vegar á 43% hlut í útgerðarfélaginu Melnesi á Rifi á Snæfellsnesi til KG Fiskverkunar. Söluverðið er 1,8 milljarðar. 

Hins vegar um sölu á 50% hluti í danska félaginu Polar Seafood Danmark dótturfélag Brims hefur haldið á hlut Brims í félaginu. Grænlenska félagið Polar Seafood Greenland er kaupandi hlutanna og er andvirði sölunnar um 925 milljónir danskra króna eða um 17,7 milljarðar íslenskra króna.

Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um kaupverð með tilliti til vaxtaberandi skulda Lýsis hf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×