Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Smári Jökull Jónsson skrifar 1. júní 2026 06:31 Tilkynnt var um kauptilboð Brims á Lýsi í september en nú hefur stjórn félagsins samþykkt kaupin. Vísir/Vilhelm Stjórn Brims hf. hefur samþykkt að kaupa öll hlutabréf í Lýsi hf.. Kaupverðið er 20 milljarðar króna sem er minna en kauptilboð Brims sem tilkynnt var um í september. Þá hefur Brim jafnframt tilkynnt um sölu á hlutum sínum í tveimur fyrirtækjum.
Í september var tilkynnt um kauptilboð Brims á Lýsi fyrir þrjátíu milljarða með fyrirvara um samþykki stjórna félaganna, hluthafafundar Brims og Samkeppniseftirlitsins. Frá kaupverðinu þá áttu að dragast 5,3 milljarðar sem voru vaxtaberandi skuldir Lýsis og hlutafjárvirði fyrirtækisins í viðskiptunum því um 24,7 milljarðar króna. Í gær var síðan greint frá því á heimasíðu Brims að stjórn félagsins hafi samþykkt kaup á öllum hlutabréfum í Lýsi fyrir tuttugu milljarða. Sagt er að endursamið hafi verið um verð og greiðslukjör í viðskiptunum sem meðal annars taki tillit til vaxtaberandi skulda. Heildarkaupverðið greiðist til helminga með reiðufé og til helminga með hlutabréfum í Brim þar sem miðað er við gengið 85 krónur á hvern hlut og verður greitt að fullu þegar viðskiptin verða frágengin að fengnu samþykki opinberra aðila. Seljendur Lýsis eignast með viðskiptunum um 6% af heildarhlutafé Brims. Þá er jafnframt greint frá sölu Brims á hlutum sínum í tveimur öðrum félögum. Annars vegar á 43% hlut í útgerðarfélaginu Melnesi á Rifi á Snæfellsnesi til KG Fiskverkunar. Söluverðið er 1,8 milljarðar. Hins vegar um sölu á 50% hluti í danska félaginu Polar Seafood Danmark dótturfélag Brims hefur haldið á hlut Brims í félaginu. Grænlenska félagið Polar Seafood Greenland er kaupandi hlutanna og er andvirði sölunnar um 925 milljónir danskra króna eða um 17,7 milljarðar íslenskra króna. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um kaupverð með tilliti til vaxtaberandi skulda Lýsis hf.
Sjávarútvegur Brim Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira