Innlent

Sérsveitaraðgerðir í Hvera­gerði

Freyja Þórisdóttir skrifar
Skjáskot úr myndbandinu.
Skjáskot úr myndbandinu.

Sérsveitaraðgerðir standa yfir í Hveragerði og var kona tekin út úr bíl og leitað í farartækinu á bílastæðinu við N1 um klukkan hálf sjö í kvöld. 

Í myndbandi má sjá konu stíga út úr bíl og henni er svo gert að snúa sér við og leggja lófana á þak bílsins. Í beinu framhaldi hefja sérsveitarmenn að opna hurðar og að því er virðist hefja leit í bílnum en taka ekki neitt út úr honum.

Það má sjá að minnsta kosti fjóra eða fimm menn á myndbandinu og fjöldi sérsveitarbíla, merktra og ómerktra, hefur athafnast á svæðinu í kvöld en ekki liggur fyrir hvað kemur til.

Lögreglan á Suðurlandi kvaðst ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×