Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki BL 28. maí 2026 07:02 Benedikt Emilsson, verkefnastjóri fyrirtækjalausna hjá BL segir mörg fyrirtæki hafa rafvætt bílaflotann. Fagmönnum er boðið í morgunkaffi í dag á Sævarhöfða þar sem verða tilboð á völdum atvinnubílum. Rafbílavæðing atvinnubíla er ekki lengur framtíðarmúsík heldur raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki í dag. Nýr Renault Master E-Tech er hannaður með það að markmiði að mæta þörfum atvinnurekstrar. Hann er miklu meira en rafvædd útgáfa af sendibíl, hann er fullbúinn vinnubíll sem stenst kröfur nútímans. Fagmönnum er boðið í morgunkaffi í BL í dag á milli kl. 8 og 10 á Sævarhöfða. „
Það er gaman að fylgjast með þeirri þróun sem hefur átt sér stað á markaðnum undanfarin ár. Fyrirtæki þurfa í auknum mæli að huga að umhverfisvænni lausnum, samhliða því að leita leiða til að draga úr orkukostnaði og lækka rekstrarkostnað. Við hjá BL höfum unnið náið með fagfólki og fyrirtækjum landsins í mörg ár með það að markmiði að hámarka notagildi atvinnubíla og það hefur verið sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu mörg fyrirtæki eru nú farin að rafvæða bílaflotann,“ segir Benedikt Emilsson, verkefnastjóri fyrirtækjalausna hjá BL. Rafsendibíll fyrir raunverulegan atvinnurekstur Atvinnubílar þurfa að standast miklar kröfur. Þar skiptir ekki aðeins máli hversu umhverfisvænir þeir eru heldur hvort þeir geti sinnt daglegum verkefnum án málamiðlana. Skilningur bílaframleiðandans, Renault á þörfum fagfólks og fyrirtækja, er ástæða þess að vörumerkið hefur framleitt marga af vinsælustu atvinnubílum landsins til margra ára. Renault Master E-Tech er hannaðu með þarfir neytandans í huga. Með mikilli drægni, öflugri hleðslugetu, mjög mikilli burðargetu og hagkvæmni í rekstri býður Master E-Tech upp á lausn sem hentar jafnt þjónustufyrirtækjum, verktökum og dreifingaraðilum sem vilja rafvæða flotann án þess að skerða afköst eða notagildi. Bíllinn býður jafnframt upp á rúmgott farmrými og dráttargetu sem gerir hann vel til þess fallinn að sinna fjölbreyttum verkefnum í daglegum rekstri. Hvort sem um er að ræða vörudreifingu, þjónustuferðir eða akstur með búnað og verkfæri er Master E-Tech hannaður til að takast á við raunverulegan vinnudag án málamiðlana. Drægni og hleðsla sem hentar daglegum rekstri Ein algengasta spurningin þegar kemur að rafsendibílum er hvort drægnin sé nægileg fyrir dagleg verkefni. Þar kemur Renault Master E-Tech sterkur inn með allt að 407 km WLTP drægni, sem er sú mesta í sínum stærðarflokki og dugar fyrir langflest dagleg verkefni íslenskra fyrirtækja. Þetta er mikilvægt atriði fyrir fyrirtæki sem hafa efasemdir um hvort rafsendibílar geti staðið undir sama vinnuálagi og hefðbundnir dísilbílar. Með Master E-Tech þarf ekki að fórna vinnugetu til að velja rafmagn. Dropp er eitt af fjölmörgum fyrirtækjum sem eru í viðskiptum við BL og hafa tekið Renault Master E-Tech í notkun í bílaflota sínum með góðum árangri. „Undanfarin fjögur ár hefur langtímastefna Dropp verið að nota rafmagnsbíla í dreifingu fyrirtækisins. BL hefur verið frábær samstarfsaðili í þeirri vegferð og Master E-Tech bílarnir hafa reynst okkur mjög vel í flotanum. Þeir eru hagnýtir, áreiðanlegir, rúmgóðir og starfsfólkið er mjög ánægt með þá,“ segir Aðalsteinn Örn, viðskiptastjóri hjá Dropp. Fyrir mörg fyrirtæki er daglegur akstur fyrirsjáanlegur og bílar oft með fasta heimastöð eða eigin hleðsluaðstöðu. Í slíkum rekstri getur Master E-Tech verið sérstaklega hagkvæm lausn þar sem hægt er að hlaða bílinn yfir nótt og hefja hvern vinnudag með fullhlaðinn vinnuþjark. Master E-Tech kemur með 22 kW AC hleðslu sem staðalbúnað, sem er mikill kostur í daglegri notkun og eiginleiki sem fáir keppinautar bjóða upp á í sama flokki. Það gerir hraðari hleðslu á almennum AC stöðvum mögulega og auðveldar fyrirtækjum að halda bílaflotanum í stöðugri notkun yfir daginn. Þá styður bíllinn einnig allt að 130 kW DC hraðhleðslu, sem getur skipt sköpum þegar hámarka þarf nýtingu flotans. Auk þess er orkunýting bílsins sterk sem hjálpar til við að halda rekstrarkostnaði niðri. Fyrir fyrirtæki sem vilja stíga skrefið yfir í rafvæðingu án þess að fórna notagildi eða sveigjanleika er Master E-Tech því mjög áhugaverður kostur. Lægri rekstrarkostnaður til lengri tíma Þó kaupverð rafbíla geti verið hærra en sambærilegra dísilbíla segir það ekki alla söguna. Fyrir fyrirtæki skiptir heildarkostnaður yfir líftíma bílsins oft meiru? máli en upphaflegt kaupverð. Rafsendibílar eins og Renault Master E-Tech bjóða almennt upp á lægri orkukostnað, einfaldara/minna viðhald og færri slitfleti en hefðbundnir dísilbílar. Það getur skilað sér í verulegum sparnaði yfir líftíma bílsins, sérstaklega hjá fyrirtækjum með mikinn daglegan akstur. Auk þess eru sífellt fleiri fyrirtæki að horfa til sjálfbærni og minni kolefnisspors sem hluta af framtíðarstefnu sinni. Þá getur rafvæddur atvinnubílafloti bæði styrkt ímynd fyrirtækja og hjálpað þeim að mæta auknum kröfum um umhverfisábyrgð. Í tilefni af nýjum og glæsilegum Renault sýningarsal, bjóðum við fagmönnum í morgunkaffi í dag á milli kl. 8-10 á Sævarhöfða. Tilboð á völdum atvinnubílum, léttar morgunveitingar og kaffi. Söluráðgjafar okkar hlakka til að taka á móti ykkur.
Bílar Vistvænir bílar Atvinnurekendur Mest lesið Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Greiðsluáskorun „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Sjá meira