Körfubolti

Ó­vænt ræða frá goð­sögninni blés San Antonio byr í brjóst

Aron Guðmundsson skrifar
Wembanyama var frábær í nótt fyrir San Antonio Spurs. Liðið sýndi allt aðrar hliðar en í síðasta leik þar sem tap var niðurstaðan. Virðist óvænt liðsræða frá goðsögninni Gregg Popovich hafa gert mikið gagn.
Wembanyama var frábær í nótt fyrir San Antonio Spurs. Liðið sýndi allt aðrar hliðar en í síðasta leik þar sem tap var niðurstaðan. Virðist óvænt liðsræða frá goðsögninni Gregg Popovich hafa gert mikið gagn. Visir/Getty

San Antonio Spurs jafnaði úrslitaeinvígið sitt við Oklahoma City Thunder í Vesturdeild NBA deildarinnar í nótt. Ræða frá goðsögn hjá félaginu eftir tap á dögunum blés leikmönnum San Antonio byr í brjóst.  

Það var allt annað að sjá til San Antonio Spurs liðsins í nótt. Krafturinn var meiri sem og ákefð leikmanna liðsins og fór svo að liðið vann 21 stigs sigur, 103-82. Úrslitaeinvígi Vesturdeildairnnar stendur nú jafnt 2-2. Vinna þarf fjóra leiki til að tryggja sér sæti í sjálfu úrslitaeinvígi NBA deildarinar.

Eftir að hafa spilað undir væntinum í undanförnum tveimur leikjum steig franski risinn Victor Wembanyama upp í leik næturinnar og setti niður 33 stig og reif að auki niður átta fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Þá verði Frakkinn þrjú skot og stal tveimur boltum. 

De´Aaron Fox, einn af lykilmönnum San Antonio Spurs liðsins sagði frá því í viðtali eftir leikinn í nótt að eftir slæma frammistöðu og þungt tap í síðasta leik hafi Gregg Popovich, fyrrverandi þjálfari liðsins og goðsögn í lifanda lífi, blásið byr í brjóst leikmanna.

Þetta var í fyrsta sinn á tímabilinu sem Popovich, sem varð á sínum þjálfari fimm sinnum NBA meistari, mætti inn í búningsklefa liðsins.

Staðan í úrslitaeinvíginu hnífjöfn, 2-2. Liðin mættast í fimmta sinn aðfaranótt miðvikudagsins næstkomandi. 

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×