Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 22. maí 2026 19:04 Lars Løkke gerði úti um vonir Troels Lund Poulsen um að leiða borgaralega stjórn. EPA Lars Løkke Rasmussen styður ekki hægristjórn undir forystu Troels Lund Poulsens formanns Venstre. Þeir áttu fund í dag sem lauk með því að ljóst var að Troels Lund yrði að skila stjórnarmyndunarumboðinu.
Samkvæmt umfjöllun danska ríkisútvarpsins vill Lars Løkke, formaður Moderaterne, að Mette Frederiksen forsætisráðherra og formaður sósíaldemókrata fái umboðið aftur. Henni tókst ekki að mynda ríkisstjórn og þá var Troels Lund fengið umboðið. Síðan þá hefur hann farið fyrir viðræðum við borgaralega flokka en án Lars Løkke er borgaraleg ríkisstjórn úr sögunni. Alls eru liðnir rétt tæplega 59 dagar án ríkisstjórnar en aldrei hefur tekið svo langan tíma að mynda stjórn í lýðræðissögu Danmerkur. Framhaldið er óljóst en í kvöld fer Troels Lund Poulsen á fund konungs í Amalíuborgarhöll. Lars Løkke segir í samtali við blaðamenn TV2 að hann hafi ekki í hyggju að knýja fram aðrar kosningar. Formenn flokkanna hafa verið boðaðir á fund konungs klukkan ellefu í fyrramálið að staðartíma þar sem stjórnarmyndunarumboðið verður að öllum líkindum fært Mette Frederiksen á nýjan leik. Í viðtali við danska ríkisútvarpið sagði Lars Løkke að honum liði betur með hinn borgaralega Troels Lund Poulsen við stýrið en að miðað við samræður þeirra tveggja undanfarnar tvær vikur sé honum Lars Løkke ljóst að Moderaterne yrðu ekki í sterkri stöðu í hægristjórn. „Ég upplifi mig öruggari með Mette Frederiksen sem skipstjóra og með Moderaterne í skynsamri stöðu,“ sagði hann.
Danmörk Þingkosningar í Danmörku Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hafa borið kennsl á hinn látna Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Leita karlmanns á sjötugsaldri Innlent Fleiri fréttir Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Sjá meira