Voni að allir fái starfið aftur Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. maí 2026 15:29 Íslandshótel taka 1. september 2026 við rekstri hótelsins við Suðurlandsbraut, sem hefur verið rekið undir merkjum Hilton Reykjavík Nordica, og hyggjast ásamt Reitum ráðast í umfangsmiklar endurbætur á næstu árum. Vísir/Vilhelm Forsvarsmenn Berjaya segjast hafa þurft að grípa til erfiðra aðgerða og segja upp starfsfólki á Hilton Reykjavík Nordica og Berjaya Reykjavík Natura Hotel eftir að ekki náðust samningar við Reiti um leigu á hótelunum. Þau voni að Íslandshótel, sem taka við hótelunum, bjóði öllum starf.
Greint var frá því á Vísi í gær að til standi að segja öllu starfsfólki hótelanna tveggja upp í næstu viku. Um þrjú hundruð starfa á hótelunum tveimur. Hilton og Natura-hótelin eru bæði í eigu Reita fasteignafélags og hefur Berjaya haft þau í leigu. Þar sem að áframhaldandi samningar náðust ekki tekur Íslandshótel við þeim þann 1. september. „Rétt er að taka fram að um ræðir samkomulag á milli Reita fasteignafélags og félagsins um lok leigusamninga á tveimur fasteignum, sem er frá og með 1. september 2026, verða ekki lengur hluti af leigusamningum Berjaya á Íslandi,“ segir í fréttatilkynningu frá Reitum. Þar segir að það hafi verið eindreginn vilji félagsins til áframhaldandi leigu en ekki hafi náðst samningar við Reiti um áframhaldandi leigu. Beryaja muni halda áfram óbreyttum rekstri hótelanna til 31. ágúst og síðan hætta rekstri þar. Þann 1. september taka Íslandshótel við. Annar starfsmannafundur í dag „Þar sem félagið verður ekki áfram leigutaki að umræddum fasteignum neyðist félagið til að grípa til erfiðra aðgerða og ljúka ráðningarsambandi við starfsfólk á þessum tveimur starfsstöðvum, sem hluti af formlegu ferli sem þarf að eiga sér stað í ljósi þessarar stöðu,“ segir í tilkynningunni. Tekið er fram að uppsagnirnar eru framkvæmdar í samræmi við ráðgjöf lögfræðinga Berjaya og í nánu samstarfi við trúnaðarmenn stéttarfélaga. Starfsmannafundir hafi verið haldnir á báðum hótelum í gær og í dag þar sem rætt var við starfsfólk. Þeir starfsmenn sem fréttastofa ræddi við í kjölfar fundarins í gær voru óánægðir með svörin sem fengust á fundinum og upplifðu margir sig yfirgefna af fyrirtæki sem sum hver höfðu unnið fyrir í mörg ár. Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að hann hefði viljað að staðið hefði betur að hópuppsögninni. Hann gerir ráð fyrir því að ráða allt fólkið aftur til starfa. „Við höfum alveg verið skýr með það og viljum að það komi skýrt fram að við viljum koma fram við þetta fólk sem vinnur á hótelunum af virðingu. Við erum í góðu samtali við trúnaðarmenn á hótelunum, góðu samtali við stéttarfélögin og það er bara þannig að öllu þessu fólki verður gefinn kostur á að koma í samtal við okkur og við gerum ekki ráð fyrir öðru en að ráða allt þetta fólk inn,“ sagði Davíð. Forsvarsmenn Berjaya taka fram í tilkynningunni að þrátt fyrir breytingarnar sé Iceland Hotel Collection by Berjaya áfram eitt stærsta hótelfélag landsins með ellefu hótel og um sex hundruð starfsmenn víðs vegar um landið.
Hótel á Íslandi Mest lesið Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Voni að allir fái starfið aftur Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Sjá meira