Körfubolti

Fetar í fót­spor föður síns og þjálfar Kefla­vík

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arnór Daði (t.v.) er nýr þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í körfubolta.
Arnór Daði (t.v.) er nýr þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í körfubolta. Mynd/Keflavík

Arnór Daði Jónsson er nýr þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í körfubolta. Hann tekur við af Herði Axel Vilhjálmssyni.

Arnór Daði hefur þjálfað yngri flokka hjá Keflavík um árabil og var aðstoðarþjálfari Harðar Axel sem stýrði Keflavíkurliðinu í undanúrslit í úrslitakeppninni á nýafstaðinni leiktíð í Bónus deild kvenna.

Hann skrifar undir tveggja ára samning við körfuknattleiksdeild Keflavíkur sem nýr aðalþjálfari liðsins.

Hörður Axel tók við Keflavík sumarið 2024 og stýrði liðinu í tvö tímabil. Það hafði orðið tvöfaldur vorið 2024 undir stjórn Sverris Sverrissonar.

Liðið varð bikarmeistari undir stjórn Harðar í vor.

Jón Halldór Eðvaldsson, eða Jonni, er faðir nýs þjálfara kvennaliðs Keflavíkur, sem fetar þar með í fótspor föður síns.Stöð 2 Sport

Arnór Daði er sonur Jóns Halldórs Eðvaldssonar, fyrrverandi þjálfara bæði karla- og kvennaliðs Keflavíkur, sem er í dag sérfræðingur í Körfuboltakvöldi á Sýn Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×