„Sérstaklega þegar þjálfarinn er ekki uppbyggilegri en þetta“ Sindri Sverrisson skrifar 21. maí 2026 11:30 Fanndís Friðriksdóttir hefur komið af krafti inn í Bestu mörkin sem sérfræðingur, eftir að hafa lagt skóna á hilluna. Sýn Sport „Getum við séð að það verði eitthvað hrun hjá ÍBV núna, búnar að tapa fyrsta leiknum?“ spurði Helena Ólafsdóttir í Bestu mörkunum á Sýn Sport Ísland í gærkvöld, eftir 3-0 tap Eyjakvenna í Kaplakrika.
Nýliðar ÍBV hafa byrjað tímabilið í Bestu deildinni stórkostlega og unnið fyrstu fjóra leiki sína en liðið tapaði 3-0 í gær og misst tvo byrjunarliðsmenn meidda af velli, þær Allison Lowrey og Emblu Harðardóttur sem virtist meiðast alvarlega. Eyjaliðið var til umræðu í Bestu mörkunum og brot úr þættinum má sjá hér að neðan. Klippa: Umræða um nýliða ÍBV Fanndís Friðriksdóttir var ekki hrifin af viðtalinu við þjálfarann Jón Óla Daníelsson eftir leik sem sagði meðal annars: „Málið er einfalt, FH er bara með margfalt betra knattspyrnulið en við og það skilaði þeim góðum sigri hér í dag.“ Fanndís segir það klárlega kúnst fyrir ÍBV-liðið að forðast einhvers konar hrun núna: „Já, ég myndi segja það, sérstaklega þegar þjálfarinn er ekki uppbyggilegri en þetta í viðtali beint eftir leik. Segir að hitt liðið sé „miklu betra í fótbolta“ en þið eruð. Maður veit ekki hvernig þetta fer í leikmannahópinn,“ sagði Fanndís sem vill að ÍBV gleymi þessum leik í Kaplakrika sem fyrst. „ÍBV má ekki við því að missa fleiri leikmenn út. Ég held að þær ættu bara að taka þennan leik og kasta honum, og halda áfram því sem þær voru að gera fyrir þennan leik. Vonandi jafna þessir leikmenn sig, sérstaklega Allison [Lowrey]. Hún skiptir þær miklu máli,“ sagði Fanndís.
Besta deild kvenna ÍBV Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Fleiri fréttir KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“