Viðskipti innlent

Málm­hlutur í maís

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Ora maísbaunir hafa verið innkallaðar
Ora maísbaunir hafa verið innkallaðar Matvælastofnun

Málmhlutur fannst í framleiðslulotu af Ora maísbaunum. Fyrirtækið hefur í varúðarskyni innkallað vöruna.

Ákvörðunin var tekin í samráði við heilbrigðiseftirlitið en Matvælastofnun tilkynnir um innköllunina.

Um er að ræða 426 gramma dós af Ora maísbaunum með lotunúmer L105293 sem er best fyrir 21. janúar 2030. Slíkar dósir er hægt að fá í verslunum um allt land.

Neytendur sem hafa keypt vöruna skulu ekki neyta hennar heldur farga eða fara með í verslun til að fá endurgreitt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×