Handbolti

Guð­jón Valur pollró­legur yfir stöðunni

Sindri Sverrisson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson hefur náð mjög eftirtektarverðum árangri með Gummersbach.
Guðjón Valur Sigurðsson hefur náð mjög eftirtektarverðum árangri með Gummersbach. Getty/Michael Hundt

Forráðamenn Gummersbach hafa verið hvattir eindregið til þess að gera nýjan langtímasamning við Guðjón Val Sigurðsson áður en einhverjir af handboltarisum Evrópu ná að krækja í þjálfarann sem komið hefur Gummersbach úr öskustónni og í hóp bestu liða Þýskalands.

Sjálfur segist Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni en núgildandi samningur hans við Gummersbach rennur út sumarið 2027. „Hann er með samning til 2027 og það er ekkert meira sem ég get sagt á þessari stundu,“ sagði Christoph Schindler, framkvæmdastjóri Gummersbach, við Handball-World.

Guðjón Valur tók við Gummersbach í 2. deild árið 2020, eftir að hafa lagt skóna á hilluna, en hafði einnig verið leikmaður liðsins mörgum árum áður.

Hann kveðst kunna afar vel við sig hjá félaginu og nýtur þess að þjálfa liðið sem nú er í 4. sæti þýsku 1. deildarinnar, fyrir ofan lið á borð við stórveldið Kiel og Rhein-Neckar Löwen. Önnur evrópsk stórlið gætu farið að bera víurnar í Guðjón Val, og eru hugsanlega byrjuð að gera það, en hann hefur nú tjáð sig um stöðuna í First 7 hlaðvarpinu og sagst í góðu sambandi við Schindler.

„Og það er ekki eins og að ég sé á förum. Það eru ekki nein vandamál hjá okkur. Við tilkynnum þetta þegar rétti tímapunkturinn finnst. Ég og mín fjölskylda kunnum verulega vel við okkur hér í Gummersbach. Svo sannarlega. Við erum líka stolt af því sem við höfum byggt upp hérna,“ sagði Guðjón Valur samkvæmt Handball-World og kvaðst ánægður að geta unnið með leikmönnum og Schindler.

„Við höldum áfram að tala saman. Ég veit ekki enn hvenær og það er algjörlega ekkert stress á mér. Né heldur á Christoph. Hvort ég verð hérna í eitt eða fimm ár enn – ég veit það ekki enn,“ sagði hinn 46 ára gamli Guðjón Valur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×